Bílar

Tveir þegar látnir í Isle of Man TT keppninni

Finnur Thorlacius skrifar
Einn keppanda í Isle of Man keppninni í ár.
Einn keppanda í Isle of Man keppninni í ár.
Hin árlega og stórhættulega mótorhjólakeppni Isle of Man TT á Ermasundseyjunni fögru er hafin og sem fyrr krefst hún mannslífa. Nú þegar eru tveir mótorhjólamenn látnir, einn í æfingum fyrir keppnina og annar í Superstock keppnishlutanum.

Mannfall er að meðaltali rúmlega tveir á hverju ári, svo þessi dauðsföll koma, eins kaldhæðnislegt og það er að segja það, ekki svo mikið á óvart. Í fyrra dóu fjórir keppendur í Isle of Man TT keppninni og er þessi keppni sú mannskæðasta í öllu mótorsporti í heiminum. Árið 2005 dóu 9 keppendur og 6 árið 2011. Þrátt fyrir þessi dauðsföll nú er keppninni haldið áfram.






×