David Attenborough sér eftir því að hafa ekki eytt nægum tíma með börnum sínum Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. júní 2017 11:31 David Attenborough var heiðraður fyrir ævistarf sitt í Ástralíu í febrúar síðastliðnum. Vísir/getty
Sjónvarps- og náttúruvísindamaðurinn David Attenborough segir sína helstu eftirsjá á löngum ferli vera að hafa ekki eytt nægum tíma með börnum sínum. Þá hugsar hann títt um dauðann og hefur áhyggjur af fólksfjölgun í heiminum. Í viðtali við heimildarmyndagerðarmanninn Louis Theroux, sem birtist í nýjasta tölublaði Radio Times, sagðist Attenborough hafa verið „ótrúlega heppinn“ í lífinu en farsæll starfsferillinn hafi verið tímaþjófur í sambandi hans og barna sinna, Roberts og Susan. „Ef þú átt sex eða átta ára barn og þú missir af þremur mánuðum í lífi þess, þá er ekki hægt að bæta upp fyrir það. Þú missir af einhverju.“ Attenborough, sem fagnaði 91 árs afmæli sínu í byrjun maí, sagðist einnig hugsa stöðugt um dauðann. „Það verður alltaf líklegra og líklegra að ég deyi á morgun.“ Aðspurður hvort hann búist við því að eitthvað taki við eftir dauðann svaraði Attenborough hreinlega: „Nei.“ Í viðtalinu ræddi Attenborough einnig fólksfjölgun jarðar, sem sjónvarpsmaðurinn telur eitt stærsta vandamál sem steðjar að mannkyninu. „Það er grundvöllur margra af vandamálum okkar. Af hverju er fólk að fara þvert yfir Evrópu akkúrat núna? Það er að hluta til vegna pólitískra vandamála en einnig vegna þess að það að vera á lífi er mjög, mjög erfitt. Fólk er þarna alveg á brúninni,“ sagði Attenborough.Hér fyrir neðan má sjá myndbrot af David Attenborough og viðskiptum hans við letidýr:
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira