Tónlist

Harpa ekki lengur miðpunktur Iceland Airwaves og færri miðar í boði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ásgeir Trausti er einn þeirra listamanna sem koma munu fram á Iceland Airwaves í ár.
Ásgeir Trausti er einn þeirra listamanna sem koma munu fram á Iceland Airwaves í ár. Vísir/Vilhelm
Tónlistarhúsið Harpa í Reykjavík verður ekki miðpunktur Iceland Airwaves eins og verið hefur undanfarin ár heldur munu nýir tónleikastaðir koma inn með breyttu fyrirkomulagi hátíðarinnar. Þannig verður off venue-stöðum fækkað og teknir inn þrír tónleikastaðir á Akureyri en með breyttu fyrirkomulagi fækkar miðum í umferð úr 9000 í 7500. Hátíðin fer fram þann 1. til 5. nóvember næstkomandi. 

„Tekin hefur verið ákvörðun um að leita aftur til upphafsins og stokka því nokkuð upp í skipulagningu hátíðarinnar. Helsta breytingin er að hátíðin mun ekki nota Hörpuna sem miðpunkt dagskrárinnar. Airwaves mun þó ekki alveg yfirgefa Hörpu því í Eldborgarsalnum verða haldnir þrennir stórir tónleikar  með Ásgeiri og Fleet Foxes,“ segir í tilkynningu Iceland Airwaves en dagskráin mun fara fram á eftirfarandi tónleikastöðum í Reykjavík:

Húrra

Gaukurinn

Hressó

Iðnó

Gamla bíó

Þjóðleikhúsið (stóra sviðið)

Þjóðleikhúskjallarinn

Eldborg í Hörpu

Fríkirkjan

Hard Rock Café

Listasafn Íslands

Valshöllin

Þá er Akureyri bætt inn í dagskrána og munu tónleikastaðirnir þar vera Græni hatturinn, Hof og Sjallinn. Boðið verður upp á beint flug milli Keflavíkur og Akureyrar með Air Iceland Connect.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.