Lífið

Kiriyama Family með útgáfutónleika annað kvöld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Krakkarnir Kiriyama family hafa verið þekkt fyrir að halda stórkostlega tónleika.
Krakkarnir Kiriyama family hafa verið þekkt fyrir að halda stórkostlega tónleika. Víðir Björnsson
Hljómsveitin Kiriyama Family ætlar að fagna útgáfu annarar breiðskífu sinnar Waiting For… með veglegum útgáfutónleikum í Tjarnarbíói í kvöld.

Sveitin hefur verið þekkt fyrir líflega og vandaða tónleika og hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi allt frá útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar sem kom út árið 2012.

Fjöldi gestahljóðfæraleikara munu koma fram ásamt hljómsveitinni til að flytja nýja verkið ásamt eldri lögum. Upphitun mun vera í höndum nýkrýndra sigurvegara Músiktilrauna 2017, Between Mountains.

Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl 20:30

Hljómsveitin lofar mögnuðum tónleikum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.