Bílar

Ljúf Kanadalögregla

Finnur Thorlacius skrifar
Kanadíski lögreglumaðurinn alsæll eftir bíltúrinn á kostagripnum Lamborghini Huracan.
Kanadíski lögreglumaðurinn alsæll eftir bíltúrinn á kostagripnum Lamborghini Huracan.
Það hefur löngum farið sögum af ljúfi viðmóti lögreglunnar í Kanada og það sannast eina ferðina enn hér. Lögreglumaður þar í landi sá stífmerktan Lamborghini Huracan ofurbíl renna rólega framhjá sér á meðal annarra ofurbíla, en þeir voru á leiðinni á Canada´s North Face Rally luxury sýningu.

Stöðvaði lögreglumaðurinn ökumann bílsins, en þó ekki til þess að sekta hann eða hrella á nokkurn hátt heldur átti sér stað hið huggulega spjall milli ökumannsins og lögreglumannsins þar sem lögreglan hvatti ökumanninn til að bæði fara varlega og hlýta lögum í leiðinni, en njóta í leiðinni þessa gæðabíls.

Svo vel fór á með þessum kumpánum að ökumaður bílsins bauð lögreglunni að prófa kostagripinn, sem hann þáði og fór í huggulega ökuferð í nágrenninu. Það væri óskandi að allir lögreglumenn heimsins hefðu eins gott viðhorf til vegfaranda og þessi kanadíski lögreglumaður, hverskonar ökutækjum sem vegfarendur aka.

Í myndskeiðinu hér að neðan má sjá hvernig fór á með lögreglumannininum ljúfa og ökumanni Lamborghini Huracan tryllitækisins. Það áhorf bræðir hörðustu hjörtu.






×