Varnarbréf fyrir skólpmál Reykjavíkur Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 18. júlí 2017 07:00 Mér er það bæði ljúft og skylt að koma reykvísku skolpi til varnar á þessum erfiðu tímum þar sem ég á vestfirskum lífmassa, af þessum toga, mikið að þakka. Þannig er mál með vexti að ég og vinur minn, sem nú er útgerðarmaður mikill, vorum með útgerð á Bíldudal. Flotinn samanstóð af hjallhurð einni með ánegldum korki. Netbút áttum við líka en annars reyndist best að taka grásleppur úr netum annarra. Eitt sinn höfðum við brugðið okkur á nærbrókina og vaðið sjó upp að maga meðan við reyndum að koma korkinum haganlega fyrir á flekanum. Þegar viðgerðum var lokið hugðumst við koma okkur upp úr en urðum þá varir við býsnin öll af barnapíum sem stóðu í fjörunni og fylgdust með. Töldum við ekki fýsilegt að láta þær sjá okkur í svo mikilli nekt. Sérstaklega var þetta mikið hagsmunamál fyrir útgerðarmanninn því hann hafði um morguninn farið í rauðar nærbuxur með mynd af bangsa. Stóðum við því með sjóinn upp að bringu og vorum nær dauða en lífi þegar okkur var bent á rör eitt mikið en upp úr því átti að koma heitt vatn. Fundum við það og þóttumst einnig finna ylinn sem frá því stóð. En það var ekki fyrr en stæðilegur brúnhlunkur sigldi í fang okkar að okkur varð verulega heitt í hamsi. Í bræði okkar fórum við að velta vöngum yfir því, þar sem við þekktum jú alla í þorpinu, hvaðan sá brúni kom en varð snemma illt af þeim þankagangi. Eftir þessa reynslu hefur hvorugur okkar haft geð í sér til að fara inn á kommentakerfið. Því tel ég að það væri bara hollt fyrir umræðuna í Reykjavík að hafa skólpmálin í smá ólestri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun