Gifti sig á stuttermabolnum á Íslandi eftir að farangurinn týndist Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. ágúst 2017 08:32 Engum sögu fer af því hvort manninum hafi verið kalt á meðan á brúðkaupinu stóð. Reddit/Zebidee
Brúðgumi, sem ferðast hafði til Íslands ásamt brúði sinni fyrir brúðkaup þeirra, þurfti að gifta sig á stuttermabolnum eftir að flugfélagið, sem brúðhjónin flugu með hingað til lands, týndi farangri hans. Vinur brúðhjónanna hlóð spaugilegri mynd af brúðkaupi parsins inn á vefsíðuna Reddit sem vakti mikla athygli. Flugfélagið Delta Airlines ber ábyrgð á vandræðum mannsins en taska, sem innihélt meðal annars brúðkaupsjakkaföt hans, týndist með flugi félagsins á leið parsins til Íslands. Vinur brúðhjónanna hlóð mynd af þeim inn á vefsíðuna Reddit sem sýnir parið ástfangið innan um íslenska náttúru eftir hjónavígsluna. Maðurinn er klæddur í suttermabol og, að því er virðist, nærbuxur en á bolnum stendur: „Þessi brúðkaupsföt eru í boði Delta Airlines.“ Samkvæmt Reddit-notandanum, sem segist vinur hjónanna, missti parið af tengiflugi til Íslands í New York í Bandaríkjunum en þau lögðu upphaflega af stað frá Washington D.C.. Þau þurftu því að fljúga með Delta til Parísar og Berlínar og þaðan til Íslands. Farangur brúðgumans endaði hins vegar í Frankfurt í Þýskalandi. Notendur Reddit, sem skrifuðu athugasemdir við þráðinn, ráðlögðu framtíðarbrúðhjónum að taka brúðkaupsklæðnaðinn ætíð með í handfarangri til að forðast téð örlög. Þá bentu einhverjir á að Icelandair fljúgi beint til Íslands frá Washington D.C., sem væri töluvert vænlegri og öruggari kostur en tengiflug.If you want to wind up in the same country as your wedding outfits, don't fly Delta Airlines. from pics
Mest lesið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Sjá meira