Heimsmeistaramótið í jójó í Hörpu Stefán Árni Pálsson skrifar 1. ágúst 2017 14:30 Páll Valdimar keppir fyrir Íslands hönd.
Heimsmeistaramótið í jójó verður haldið á Íslandi daganna 10.-12. ágúst í Hörpu. Tvöhundruð keppendur frá þrjátíu löndum eru skráðir til leiks og má búast við yfir 500 erlendra gesta vegna mótsins. Um er að ræða fyrsta skiptið sem heimsmeistaramót í hinni margslungnu íþrótt jójó er haldin hérlendis. Mótið fer fram í Silfurbergi í Hörpu. Keppt er í fjölbreyttum stílum á mótinu þar sem keppendur láta ljós sitt skína og jójóin fljúga en dómarar rýna í listræna tjáningu keppenda, fimi og úthugsaða og taktfasta frammistöðu við tónlist. Aðrar keppnisgreinar eru meðal annars þar sem keppendur láta jójó leika í lausu lofti og notkun tveggja jójóa samtímis. Neðra rýmið í Hörpu, Flói, verður sérstakt kennslu- og æfingarsvæði fyrir alla þá sem vilja líta inn og prufukeyra jójó í fyrsta sinn eða dusta rykið af gamla jójóputtanum. Þeir sem standa að kennslunni eru keppendur mótsins. Þátttaka er ókeypis og býðst gestum og gangandi að koma og taka þátt. Páll Valdimar Kolka Guðmundsson keppir fyrir hönd Íslands en hann hefur áður keppt á heimsmeistaramótinu á erlendri grundu auk þess að hafa hlotið silfur í tvígang á evrópumótinu, sigrað opna breska meistaramótið og stórmót í Japan. Skipulag mótsins hérlendis er í höndum Páls Valdimars Kolka Guðmundssonar, Sigurhans Óskars Sigurhanssonar og Ben McPhee, og er það haldið í samstarfi við Alþjóðlega jójósambandið (IYYF). Stærstu styrkaraðilar mótsins eru YoYoFactory og Mountain Dew. Undirbúningur mótsins hefur tekið tvö ár og er þetta annað skiptið sem mótið er haldið í Evrópu. Miðar á keppnina fást á Tix.is þar sem hægt er að tryggja sér þriggja daga passa á 5.500 kr. og dagpassa á 3.000 kr. Nýlega var tilkynnt að opinbert lag mótsins er Throw Down with MK með hljómsveitinni Future Boyz. Hægt er að hlusta á það hér fyrir neðan.
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira