Jöfn búseta best fyrir skilnaðarbörn Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. september 2017 09:52 Myndin er sviðsett. visir/Getty
Börn sem búa við jafna búsetu eftir skilnað glíma við færri sálræn vandamál en þau sem búa alfarið eða að mestu leyti hjá öðru foreldrinu eftir skilnað. Þetta sýna niðurstöður sænskrar rannsóknar á vegum Háskólans í Uppsala og Karolínsku stofnunarinnar. Rannsóknin var gerð á alls 3.656 leikskólabörnum á aldrinum þriggja til fimm ára. Jöfn búseta er algengari í Svíþjóð en víðast hvar. Hafa verið gerðar sambærilegar rannsóknir á grunnskólabörnum og táningum og gefa niðurstöður þeirra rannsókna til kynna að eldri krakkar séu ánægðir með jafna búsetu. Hingað til hefur verið talið að þetta gildi ekki endilega um leikskólabörn enda oft litið á að þau þurfi meiri stöðugleika og samfellu í sínu lífi. Þó hafa fáar rannsóknir verið gerðar á þessum aldurshópi og var því ráðist í rannsóknina sem hér um ræðir. Rannsakendur byggðu á gögnum frá foreldrum og leikskólakennurum. Sýndu gögnin að þau börn sem bjuggu alfarið eða að mestu leyti hjá öðru foreldrinu eftir skilnað glímdu frekar við sálræn vandamál en börn sem bjuggu við jafna búsetu eða hjá báðum foreldrum. Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar í Svíþjóð sem tekur til líðan barna í jafnri búsetu eftir skilnað. Nánar má lesa um rannsóknina hér
Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Sjá meira