Bílar

Jeep Compass fékk 5 stjörnur hjá EuroNCAP

Finnur Thorlacius skrifar
Jeep Compass.
Jeep Compass.
Jeep Compass hefur fengið hæðstu einkunn úr árekstarprófunum hjá EuroNCAP.  Jeep Compass kemur mjög vel út í öllum flokkum prófana og þykir þetta sérlega góður árangur, þar sem EuroNCAP hefur nýlega gert auknar kröfur um öryggisstaðla í bifreiðum í sínum prófunum.  

Niðurstaðan endurspeglar þann metnað sem Jeep hefur sett í hönnun á Jeep Compass, en hann er útbúinn fjölmörgum hlutum sem auka verulega öryggi bæði ökumanns og farþega, sem og gangandi vegfarenda.  Þá þykir öryggisgrindin sem umlykur ökumann og farþega í farþegarými,  sérlega vel heppnuð með tilliti til öryggisþátta.






×