Spænska samvinnan hjá Chelsea sú besta í bestu deildum Evrópu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. september 2017 15:15 Álvaro Morata skoraði þrennu um síðustu helgi. Vísir/Getty
Álvaro Morata hefur séð til þess að stuðningsmenn Chelsea voru fljótir að gleyma tuttugu marka manninum Diego Costa. Spænski framherjinn hefur skorað sex mörk í fyrstu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni þar af þrennu í 4-0 útisigri á móti Stoke City um síðustu helgi. Morata byrjaði á bekknum í fyrsta leik Chelsea sem tapaði óvænt 3-2 á móti Burnley á heimavelli en Chelsea-liðið hefur náð í 13 af 15 mögulegum stigum í þeim leikjum sem Morata hefur byrjað. Álvaro Morata er langt frá þvi að vera eini Spánverjinn í liði Chelsea og það hefur örugglega hjálpað honum við að koma sér fyrir á Stamford Bridge. Samvinna Álvaro Morata og César Azpilicueta hefur verið mögnuð en fjögur af sex mörkum Morata hafa komið eftir stoðsendingar frá César Azpilicueta. Azpilicueta lagði upp tvö af þremur mörkum Morata á móti Stoke City á laugardaginn en hafði áður gefið stoðsendingar á hann gegn Everton og Leicester City. Squawka Football síðan hefur nú tekið það saman hvaða samvinna tveggja leikmanna hefur verið árangursríkust til þessa á tímabilinu þegar kemur að mörkum og stoðsendingum. Enginn leikmaður í fimm bestu deildum Evrópu hefur lagt upp jafnmörg mörk fyrir einn leikmann og César Azpilicueta fyrir Álvaro Morata. Eins og sjá má hér fyrir neðan.Top assist-to-scorer combos in Europe’s top 5 leagues: Azpilicueta to Morata (4) Pjanic to Dybala (3) Alba to Messi (3) Deadly duos. pic.twitter.com/iMCrkLNKbG — Squawka Football (@Squawka) September 25, 2017Stoðsendingarnar í fyrstu sex mörkum Álvaro Morata í ensku úrvalsdeildinni: Markið á móti Burnley: Willian Markið á móti Everton: César Azpilicueta Markið á móti Leicester: César Azpilicueta Fyrsta markið á móti Stoke: César Azpilicueta Annað markið á móti Stoke: Tiemoué Bakayoko Þriðja markið á móti Stoke: César Azpilicueta
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fleiri fréttir Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjá meira