Góðu og slæmu tölurnar í tveggja ára stjóratíð hjá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2017 15:15 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er örugglega með flest faðmlög knattspyrnustjóra í deildinni síðan að hann tók við. Vísir/Getty
Þjóðverjinn Jürgen Klopp heldur upp á tveggja ára afmæli sitt sem knattspyrnustjóri Liverpool um helgina en það eru liðin tvö ár síðan að hann tók við Liverpool liðinu af Brendan Rodgers í október 2015. Sky Sport notar tækifæri og fer ítarlega yfir tölfræðina í stjóratíð Jürgen Klopp og þar má sjá bæði góðar og slæmar tölur. Jürgen Klopp hefur náð í 56 prósent stiga í boði í fyrstu 45 leikjunum sínum sem knattspyrnustjóri Liverool í ensku úrvalsdeildinni en undir stjórn Brendan Rodgers náði liðið „aðeins“ í 46 prósent stiga. Greinin hjá Sky Sports byrjar á góðu tölfræðinni en ekkert lið hefur gengið betur á móti bestu liðunum en einmitt Liverpool-liðið hans Jürgen Klopp. Frá því að hann tók við hefur Liverpool unnið 9 leiki og aðeins tapað 2 í leikjum við eitt af hinu stóru liðunum en til þess hóps teljast Manchester United, Arsenal, Chelsea, Tottenham og Manchester City. Hér fyrir neðan má góðu og slæmu tölurnar úr samantekt Sky Sport sem annars má lesa alla hér.Mjög gott:Besti árangur í innbyrðisleikjum toppklúbbanna sex: (Síðan að Klopp var ráðinn í október 2015) Liverpool 36 stig í 20 leikjum (+13, 35-22) Chelsea 28 stig í 21 leik (-2, 24-26) Tottenham 27 stig í 19 leikjum (+6, 25-19) Manchester United 22 stig í 17 leikjum (-5, 13-18) Manchester City 21 stig í 20 leikjum (-4, 25-29) Arsenal 17 stig í 19 leikjum (-8, 27-35)Mjög slæmt:Versti árangur topp sex liðanna í leikjum á móti liðum utan topp sex: (Sigurhlutfall síðan að Klopp var ráðinn í október 2015) Tottenham 71,4 prósent Arsenal 69,6 prósent Chelsea 68,5 prósent Manchester City 67,3 prósent Manchester United 56,9 prósent Liverpool 52,7 prósent Það er ekki eins og Jürgen Klopp hafi verið að laga tölfræðina í síðari töflunni á þessu tímabili þrátt fyrir að hafa styrkt liðið mikið framarlega á vellinum. Liverpool-liðið hefur nefnilega þegar tapað stigum á móti Watford, Burnley og Newcastle á þessari leiktíð. Það hefur gengið mjög illa hjá Liverpool á brjóta á bak aftur lið sem þétta raðirnar aftarlega á vellinum.SlæmtMörk fengin á sig Liverpool hefur fengið á sig 94 mörk síðan að Jürgen Klopp tók við eða meira en United, City, Chelsea, Tottenham og Arsenal.SlæmtMörk fengin á sig úr föstum leikatriðum Liverpool hefur fengið á sig 28 mörk úr föstum leikatriðum síðan í október 2015 en aðeins Watford, Stoke og Crystal Palace hafa fengið á sig fleiri slík mörk.SlæmtMörk fengin á sig sem skrifast á mistök varnarmanna eða markvarðar Liverpool hefur fengið á sig 18 mörk eftir mistök varnarmanna eða markvarðar síðan að Jürgen Klopp tók við en aðeins Crystal Palace og West Ham hafa fengið á sig fleiri mörk við slíkar aðstæður.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjá meira