Upphitun: Stórleikur á Anfield │ Myndband Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. október 2017 09:30
Enska úrvalsdeildin byrjar aftur að rúlla í dag eftir landsleikjahlé þegar áttunda umferðin hefst og veislan byrjar heldur betur með látum. Stórliðin og erkióvinirnir í Liverpool og Manchester United mætast í hádeginu. Þessi lið hafa eldað grátt silfur saman í fjölda ára og valda leikir þeirra sjaldan vonbrigðum. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst hún klukkan 11:15. Fimm leikir fara fram klukkan 14:00. Jóhann Berg Guðmundsson mætir aftur til leiks með Burnley, sjóðheitur eftir að hafa skorað eftirminnilega í báðum landsleikjum Íslands. Hans menn fá West Ham í heimsókn á Turf Moor. Botnlið Crystal Palace á enn eftir að skora í deildinni á tímabilinu og er ekki sjálfgefið að þeir nái því í dag þegar Englandsmeistarar Chelsea mæta í heimsókn á Selhurst Park. Leikur Palace og Chelsea verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Topplið Manchester City getur hins vegar ekki hætt að skora. Þeir fá lið Stoke í heimsókn, en Stoke er í 13. sæti með átta stig og hafa unnið tvo leiki. Nýliðar Huddersfield fara til Wales og heimsækja Swansea. Nýliðarnir fóru mjög vel af stað í deildinni, en hefur aðeins dvalað undan árangri þeirra, en þeir eru í 11. sæti með 9 stig að loknum sjö umferðum. Tottenham fær svo Bournemouth í heimsókn á Wembley. Harry Kane hefur verið óstöðvandi í liði Tottenham að undanförnu og verður erfitt verkefni fyrir varnarmenn Bournemouth að reyna að stöðva hann. Í lokaleik dagsins fær Watford svo Arsenal í heimsókn. Arsene Wenger og hans menn eru í fimmta sæti, jafnir Chelsea að stigum, með fjóra sigra og eitt jafntefli. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 16:30. Upphitunarmyndband fyrir leiki dagsins má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mata: Það er ekkert eins og leikir á milli United og Liverpool Enska úrvalsdeildin byrjar aftur með látum í hádeginu á morgun þegar að Liverpool tekur á móti Manchester United. 13. október 2017 10:30 Fallegt að spila á Anfield Enski boltinn hefst á ný í dag eftir landsleikjahlé og verður byrjað á risaleik Liverpool og Man. Utd. Stjóri Utd óttast ekki háværa stuðningsmenn Liverpool. 14. október 2017 06:00 Könnun BBC: Aðeins tveir Liverpool leikmenn kæmust í úrvalslið Liverpool og Man United Liverpool tekur á móti erkifjendum sínum í Manchester United í hádeginum á morgun í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Að því tilefni gerði BBC skoðanakönnun meðal lesanda sinna um hvernig sameiginlegt úrvalslið liðanna liti út. 13. október 2017 18:00 Mest lesið Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Dagskráin í dag: Stjörnur framtíðarinnar og pílukast Sport Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Sjá meira
Mata: Það er ekkert eins og leikir á milli United og Liverpool Enska úrvalsdeildin byrjar aftur með látum í hádeginu á morgun þegar að Liverpool tekur á móti Manchester United. 13. október 2017 10:30
Fallegt að spila á Anfield Enski boltinn hefst á ný í dag eftir landsleikjahlé og verður byrjað á risaleik Liverpool og Man. Utd. Stjóri Utd óttast ekki háværa stuðningsmenn Liverpool. 14. október 2017 06:00
Könnun BBC: Aðeins tveir Liverpool leikmenn kæmust í úrvalslið Liverpool og Man United Liverpool tekur á móti erkifjendum sínum í Manchester United í hádeginum á morgun í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Að því tilefni gerði BBC skoðanakönnun meðal lesanda sinna um hvernig sameiginlegt úrvalslið liðanna liti út. 13. október 2017 18:00