Könnun BBC: Aðeins tveir Liverpool leikmenn kæmust í úrvalslið Liverpool og Man United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2017 18:00 Vísir/Samsett/Getty
Liverpool tekur á móti erkifjendum sínum í Manchester United í hádeginum á morgun í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Að því tilefni gerði BBC skoðanakönnun meðal lesanda sinna um hvernig sameiginlegt úrvalslið liðanna liti út. Það er óhætt að segja að leikmenn Manchester United hafi komið miklu betur í þessari skoðunarkönnun en alls tóku 80 þúsund manns þátt í henni. Einu Liverpool-mennirnir í úrvalsliði LFC og MU eru stórstjörnurnar Philippe Coutinho og Sadio Mane sem eru á sitthvorum kantinum. Ekki kemur það reyndar mikið á óvart að enginn Liverpool-maður sé í vörninni enda varnarleikurinn hjá Liverpool mikið vandamál. Markvörður Manchester United, David de Gea, fékk meira að segja 96,5 prósent atkvæða. Manchester United á líka báða miðjumennina, Nemanja Matic og Paul Pogba, sem og báða framherjana, Romelu Lukaku og Marcus Rashford. Það er ekkert pláss fyrir Liverpool-manninn Mohamed Salah í framlínunni þrátt fyrir að Egyptinn hafi spilað mjög vel á sínu fyrsta tímabili á Anfield. Það vekur líka athygli að Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, komst varla á blað í þessari könnun en hann er ekki meðal þeirra sem voru næstir því að komast inn á miðjuna í liðinu.Úrvalslið Manchester United og Liverpool að mati lesenda heimasíðu BBC: Markvörður: David de Gea, Manchester UnitedHægri bakvörður: Antonio Valencia, Manchester UnitedMiðvörður: Eric Bailly, Manchester UnitedMiðvörður: Phil Jones, Manchester UnitedVinstri bakvörður: Luke Shaw, Manchester UnitedHægri kantmaður: Sadio Mane, LiverpoolMiðjumaður: Nemanja Matic, Manchester UnitedMiðjumaður: Paul Pogba, Manchester UnitedVinstri kantmaður: Philippe Coutinho, LiverpoolFramherji: Marcus Rashford, Manchester UnitedFramherji: Romelu Lukaku, Manchester UnitedNæstir inn í vörnina: Daley Blind, Ashley Young og James Milner.Næstir inn á miðjuna: Henrikh Mkhitaryan og Adam Lallana.Næstir inn í sóknina: Zlatan Ibrahimovic, Roberto Firmino og Anthony Martial.Leikur Liverpool og Manchester United hefst klukkan 11.30 á morgun og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Fresta útför pabbans svo sonurinn geti keppt á Ólympíuleikunum Sport Dagskráin í dag: Stjörnur framtíðarinnar og pílukast Sport Fleiri fréttir Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjá meira