Býður þjóðarleiðtoga Egyptalands velkominn í óþökk mannréttindahópa Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 23. október 2017 22:43 Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir undanlátssemi í garð kúgandi ríkisstjórnar. Vísir/Getty „
Macron forseti, ætti að láta af svívirðilegri undanlátssemi í garð kúgandi ríkisstjórnar al-Sisi,“ segir Benedicte Jeannerod, yfirmaður Human Rights Watch samtaka um mannréttindi, í yfirlýsingu sem birtist í dag. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, býður Abdel Fattah al-Sisi, þjóðarleiðtoga Egyptalands, velkominn í heimsókn til Frakklands á morgun. Frakklandsheimsóknin mun standa yfir í tvo daga og er áætlað að al-Sisi hitti utanríkis- og varnarmálaráðherra Frakka auk þess sem til stendur að al-Sisi fundi með viðskiptahópum að því er fram kemur í frétt AFP.Abdel Fattah al-Sisi, þjóðarleiðtogi Egyptalands er gefið að sök að hafa fyrir kerfisbundnum mannréttindabrotum.vísir/gettyMacron, sem kjörinn var forseti í maí síðastliðnum, rekur árangursdrifna og lausnamiðaða utanríkisstefnu á sama tíma og hann reynir að halda uppi merkjum Frakka í mannréttindamálum. Heimsóknin verður prófsteinn á þennan línudans því Egyptaland er stór kaupandi franskra vopna og lykil vinaþjóð í stríðshrjáðum heimshluta en al-Sisi er sakaður um að standa fyrir kerfisbundnum mannréttindabrotum. Mannréttindahópar víða um land þrýsta á Macron að horfa til mannréttindasjónarmiða í þessu máli, sjálf þögnin sendi þau skilaboð að yfirvöld í Egyptalandi geti haldið áfram uppteknum hætti.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Innlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila