Segja ósamræmi í frásögn kvennanna sem var bjargað eftir fimm mánuði á Kyrrahafinu Birgir Olgeirsson skrifar 31. október 2017 20:38 Hefur þetta ósamræmi vakið upp spurningar þess efnis hvort þær hefðu geta komist hjá þessum hrakförum. Vísir/EPA
Ósamræmi gætir í frásögn kvennanna tveggja sem var bjargað af bandaríska flotanum á Kyrrahafi aðfaranótt 27. október síðastliðins, en þær voru á reki á skútu sinni í heila fimm mánuði.AP-fréttastofan segir að komið hafi í ljós að konurnar virkjuðu aldrei neyðarsendi skútunnar og sögðust hafa lent í skelfilegum stormi sem veðurfræðingar segja að hafi aldrei gengið yfir það svæði sem þær voru á. AP-fréttastofan segir þetta aðeins viðbót við grunsemdir sem uppi eru um frásögn kvennanna. Hefur þetta ósamræmi vakið upp spurningar þess efnis hvort þær hefðu geta komist hjá þessum hrakförum.Nefndu aldrei neyðarstaðsetningarbúnað Jennifer Appel og Tasha Fuiaba ætluðu að sigla lítilli seglskútu frá Hawaii til Tahiti þegar vélin í bátnum eyðilagðist. Þær sögðust hafa lent í stormi, sem stóð yfir í þrjá daga, við Hawaii-eyjur sem hafi gert út af við siglingarbúnað og vél skútunnar. Konurnar höfðu áður sagt við The Associated Press að þær hefðu haft talstöðvar, gervihnattarsíma og GPS-staðsetningartæki og annan neyðarbúnað um borð í seglskútunni, en nefndu þó aldrei neyðarstaðsetningarbúnað. Rannsókn bandarísku landhelgisgæslunnar á máli þeirra leiddi í ljós að þær höfðu þennan búnað í skútunni en virkjuðu hann ekki. Appel hefur látið hafa eftir séð að hún taldi að aðeins ætti að nota þennan neyðarstaðsetningarbúnað ef að lífshættulegar aðstæður væru fyrir hendi næstu 24 klukkustundirnar.Sáu ekki fram á dauða „Skipsskrokkurinn var heill, við flutum, við höfðum mat, við höfðum vatn og við gátum með veikum mætti stýrt skútunni,“ sagði Appel þegar rætt var við hana í Japan, þangað sem bandaríski flotinn flutti þær eftir að þeim hafði verið bjargað. „Allt þetta gaf til kynna að við værum ekki að fara að deyja. Það sem þetta sagði okkur var að við yrðum mun lengur á leiðinni en við gerðum ráð fyrir.“ AP-fréttastofan segir Appel hafa greint frá því að á ferð þeirra hafi tvisvar sinnum komið til greina að virkja þennan búnað, annars vegar nærri Hawaii seint í júní og byrjun júlí, og nærri Wake-eyju 1. október síðastliðinn.Aldrei heyrt af slíkri bilun „Það er eitthvað rangt við þessa sögu,“ hefur AP-fréttastofan eftir Phillip R. Johnson, sem starfaði áður fyrir bandarísku landhelgisgæsluna. Hann fór fyrir deild innan landhelgisgæslunnar sem sérhæfði sig í leit og björgun. Neyðarstaðsetningarbúnaðurinn sendir staðsetningu til yfirvalda í gegnum gervihnetti á nokkrum mínútum. Búnaðurinn fer sjálfkrafa í gang ef hann er á í á kafi í vatni og þá er einnig hægt að kveikja á honum. Þegar Appel og Fuiava var bjargað sögðust þær hafa haft sex leiðir til að senda boð til umheimsins sem allar brugðust. „Ég hef aldrei heyrt af því að slíkur búnaður bili allur á sama tíma,“ hefur AP-fréttastofan eftir Johnson.Efast um lykilatriði í fráösgn AP-fréttastofan segir að yfirvöld dragi í efa nokkur af lykilatriðum í frásögn kvennanna. Frásagnir þeirra stangist á við veðurupplýsingar og landafræði Kyrrahafsins. Konurnar hafa sagt frá því að bilun hafi komið upp í siglingarbúnaði og vél skútunnar og að þær hefðu verið á barmi þess að gefast upp þegar þeim var bjargað fjarri landi. Þær kynntust síðla árs 2016 en viku síðar ákváðu þær að fara saman í siglingu yfir Kyrrahafið, þrátt fyrir að Fuiava hefði enga reynslu af siglingum. Þær ætluð að sigla frá Hawaii til Tahítí á átján dögum, sigla síðan um Suður-Kyrrahafið og snúa svo aftur til Hawaii í október. Þær lögðu af stað 3. maí síðastliðinn en segjast hafa lent í stormi undan Oahu-eyju. Þar hafi vindhraði náð 26 metrum á sekúndu og ölduhæð níu metrum í þrjá daga samfellt.Enginn stormur á þessum tíma AP-fréttstofan segir veðurstofuna í Honolulu hafa gefið út að enginn slíkur stormur hafi gengið yfir Hawaii-eyjar eða í grennd við þær á þessum tíma. Það staðfesti einnig gervihnattarmyndir frá geimrannsóknastofnun Bandaríkjanna, NASA. Appel hefur látið hafa eftir sér að hún væri undrandi á þessum upplýsingum því að þær hefðu fengið stormviðvörun frá bandarísku landhelgisgæslunni 3. maí síðastliðinn. Hún segir að þær hefðu hugsað um að fara í land en að nálægar eyjur, Maui og Lanai, hefðu ekki haft nógu djúpar hafnir fyrir skútuna þeirra. AP-fréttastofan segir konurnar hafa haft nokkur tækifæri til að ná til lands á öðrum eyjum en ekki gert það. Þær hafi þess í stað ákveðið að setja stefnuna til Cook-eyja en þá hafi annar stormur skollið á sem kom í veg fyrir það. Þegar þær voru komnar um 1.500 kílómetrum undan strönd Japans komu taívanskir sjómenn auga á þær og létu bandaríska flotann vita.
Mest lesið Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Innlent Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Innlent Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Innlent Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Innlent Fleiri fréttir Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Sjá meira
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent