Sigurganga City heldur áfram Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. desember 2017 17:45 Manchester City auk forystu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar aftur í átta stig þegar liðið sigraði West Ham 2-1 á Etihad vellinum í Manchester. City þurfti að hafa fyrir sigrinum, en Angelo Ogbonna kom West Ham yfir undir lok fyrri hálfleiks. Nicolas Otamendi jafnaði fyrir City á 57. mínútu og tryggði David Silva þeim sigurinn með marki á 83. mínútu. Undir lok venjulegs leiktíma komust Hamrarnir grátlega nálægt því að jafna leikinn þegar Diafra Sakho skaut framhjá úr frábæru færi. Þrátt fyrir að sigurinn hafi ekki verið öruggur þá voru heimamenn með mikla yfirburði. voru með boltann nærri 80 prósent í leiknum og áttu 24 skot að marki. Enski boltinn
Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti