Verkamenn mótmæltu fyrir utan sendiherrabústað Geirs í Washington Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. desember 2017 09:04 Mótmælendur vörpuðu mynd á sendiherrabústaðinn. Mynd/Teamsters
Verkamenn sem starfa fyrir Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum mótmæltu fyrir utan sendiherrabústað Íslands í Washington á fimmtudaginn. Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, ræddi við mótmælendurna sem voru að mótmæla hvernig háskólinn kemur fram við starfsmenn.Greint er frá mótmælunum á heimasíðu Verkalýðsfélags vörubílstjóra í Bandaríkjunum sem skipulagði mótmælin. Hefur það í gegnum tíðina hefur verið eitt öflugasta verkalýðsfélagið þar í landi. Þar segir að ástæða mótmælanna hafi verið sú að verkalýðsfélagið hafi, ásamt öðrum verkalýðsfélögum, reynt að undanförnu að semja við háskólann um bætt kjör til félagsmanna sinna Telja verkalýðsfélögin að háskólinn sé ekki að greiða sumum félagsmönnum sínum laun sem nægi til grunnframfærslu.Geir H. Haarde er sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.vísir/vilhelmÁ vefsíðunni segir að ákveðið hafi verið að mótmæla fyrir utan sendiherrabústað Geirs af þeirri ástæðu að hann útskrifaðist frá Minnesota-háskóla á sínum tíma. Þá hélt Geir einnig boð fyrir fyrrverandi nemendur háskólans sem búsettir eru í Washington á sama tíma og mótmælin fóru fram. „Enginn atvinnuveitandi á Íslandi kæmist upp með að koma fram við lægst launuðustu starfsmenn sína líkt og Minnesota-háskóli gerir,“ sagði Curt Swenson, varaforseti svæðisfélags Verkalýðsfélags vörubílstjóra. Geir, sem verið hefur sendiherra Íslands í Bandaríkjunum frá árinu 2015, ræddi við mótmælendur, þar á meðal Sara Parcells sem starfað hefur fyrir háskólann í sextán ár. „Ég sagði sendiherranum að ég væri einstæð móðir með tvö börn. Ég sagði hr. Haarde að launin mín hefðu ekki haldið í við grunnframfærsluviðmið. Jafn vel þó ég hafi starfað fyrir skólann í sextán ár borgar hann mér ekki nógu há laun til þess að ég hafi efni á að gefa börnunum mínum jólagjafir,“ sagði Parcells. Segir hún að Geir hafi sagt sér að honum þætti þetta leitt en að hann gæti ekki sagt af eða á hvort hann myndi ræða við forsvarsmenn Minnesota-háskóla. Fleiri mótmælendur ræddu við Geir en á vefsíðu verkalýðsfélagsins kemur einnig fram að Geir hafi sagt þeim að hann hefði enga ástæðu til þess að blanda sér í deilur verkalýðsfélaganna og háskólans.Hér að neðan má sjá myndband frá mótmælunum.
Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Sjá meira