„Finnst þér þetta ekki fínar rammagreinar?“ spyr Björn Ingi þegar blaðamaður nær tali af honum. Hann vill reyna að skorða sig við styttri texta og gefa frekar út fleiri pistla þar sem fólk nenni almennt ekki að lesa langan texta.
„Við [fyrrverandi stjórn Pressunnar] teljum að nú sé kominn tími til að greina frá okkar hlið,“ segir hann og bætir við að ný stjórn Pressunnar hafi farið fram í fjölmiðlum undanfarið með ásökunum í garð fráfarandi stjórnar.
Vísir greindi frá því á miðvikudaginn að Pressan hefði verið tekin til gjaldþrotaskipta og að Kristján B. Thorlacius hefði verið skipaður skiptastjóri yfir búinu. Mikil átök hafa geisað í aðdraganda gjaldþrotsins á milli fráfarandi og nýrrar stjórnar.
„Ef að menn hafa fylgst með fjölmiðlum upp á síðkastið þá halda þeir kannski fram að það hafi verið töluvert um hannaða atburðarás þar sem einhverju var skellt fram og okkur fyrrverandi stjórnarmönnum Pressunnar ætlað að svara því.“
„Hreinar hefndaraðgerðir“ nýrrar stjórnar
Hann segir eina tilgang nýrrar stjórnar að koma félaginu í þrot.
„Við töldum það ekki nauðsynlegt enda var hún [Pressan] búin að selja mjög mikið af eignum fyrir mjög mikla peninga og borga niður skuldir,“ segir hann og bætir við að „ætlunarverk“ nýrrar stjórnar hafi tekist.
Aðspurður út í það hvort hann geti hugsað sér tilgang þess að ný stjórn stefnir félaginu í þrot segir hann að um sé að ræða „hreinar hefndaraðgerðir“.
„Já ég held bara að þeir séu að reyna að koma illu til leiðar, ef svo má segja. Það hefur komið fram opinberlega og annars staðar að ég er í persónulegri ábyrgð og öðru slíku svo það lendir þá á mér. Ég get ekki séð annað en að þetta séu hreinar hefndaraðgerðir og verði þeim að góðu sem standa fyrir þeim.“
Björn Ingi segir ekki komið í ljós hversu margir pistlarnir verða.
„Það fer bara eftir því hvernig mér gengur.“
Lesa má Facebook-færslu Björns Inga hér að neðan þar sem hann greinir frá fyrsta pistli.