Brottrekstrarhrina í ensku úrvalsdeildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. janúar 2018 06:30 Mark Hughes missti starfið sitt hjá Stoke eftir tap fyrir Coventry sem er þremur deildum neðar. vísir/getty
Mark Hughes var rekinn sem knattspyrnustjóri Stoke City á laugardagskvöldið. Kornið sem fyllti mælinn hjá annars þolinmóðum stjórnarmönnum Stoke var neyðarlegt 2-1 tap fyrir D-deildarliði Coventry City í 3. umferð ensku bikarkeppninnar. Það var 200. og síðasti leikur Hughes við stjórnvölinn hjá Stoke. Hann er sjöundi stjórinn í ensku úrvalsdeildinni sem missir starfið sitt í vetur. Þeir ágætu menn sem starfa þar búa ekki við mikið starfsöryggi. Eftir að hafa stýrt Stoke til 9. sætis ensku úrvalsdeildarinnar á fyrstu þremur tímabilum sínum við stjórnvölinn hjá liðinu féll það niður í 13. sæti í fyrra. Í vetur hefur svo sigið enn frekar á ógæfuhliðina. Stoke skorar lítið og ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni hefur fengið á sig fleiri mörk, eða 47 talsins. Hughes var gagnrýndur fyrir að tefla fram veiku liði í 5-0 tapi fyrir Englandsmeisturum Chelsea 30. desember. Walesverjinn réttlætti þá ákvörðun með því að Stoke ætlaði að einbeita sér að leiknum gegn Newcastle United á nýársdag. En hann tapaðist og það þrengdi enn frekar að Hughes sem skilur við Stoke í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Martin O’Neill, landsliðsþjálfari Írlands, er efstur á lista veðbanka yfir líklegustu eftirmenn Hughes hjá Stoke. Eins og áður sagði hafa hæstráðendur liðanna í ensku úrvalsdeildinni ekki sýnt neina miskunn þegar kemur að því að skipta um stjóra í vetur. Sjö stjórar hafa fengið að taka pokann sinn þegar tímabilið er rétt rúmlega hálfnað. Það voru bara fjórar umferðir búnar þegar Steve Parish, stjórnarformaður Crystal Palace, gafst upp á Hollendingnum Frank de Boer. Palace tapaði öllum fjórum deildarleikjunum undir hans stjórn og skoraði ekki mark. De Boer var aðeins 77 daga við stjórnvölinn hjá Palace. Við starfi De Boers tók Roy Hodgson og sá gamli hefur heldur betur gert góða hluti hjá uppeldisfélaginu. Palace hefur safnað 22 stigum síðan Hodgson tók við og er komið upp í 14. sæti deildarinnar. Þann 17. október var punkturinn settur aftan við veru Craigs Shakespeare hjá Leicester City. Maðurinn með skáldlega nafnið tók við Refunum af Claudio Ranieri í febrúar 2017 og þeir byrjuðu frábærlega undir hans stjórn. Leicester fékk hins vegar afar erfiða leiki í byrjun þessa tímabils og fá stig komu í hús. Shakespeare var því rekinn og Frakkinn Claude Puel tók við. Leicester hefur klifið töfluna undir hans stjórn og er búið að koma sér þægilega fyrir í 8. sætinu. Aðeins sex dögum eftir að Shakespeare var rekinn fór Ronald Koeman sömu leið. Hollendingurinn stýrði Everton í síðasta sinn í 2-5 tapi fyrir Arsenal. Koeman keypti leikmenn fyrir rúmar 150 milljónir punda í sumar en mistókst að fylla skarðið sem Romelu Lukaku skildi eftir sig. Eftir mikla rekistefnu var Sam Allardyce ráðinn til Everton, rúmum mánuði eftir að Koeman var rekinn. Stóri Sam hefur stoppað í götin í varnarleik Everton sem er komið upp í 9. sæti deildarinnar. Slaven Bilic var rekinn frá West Ham 6. nóvember og daginn eftir var David Moyes ráðinn í hans stað. Bilic gerði fína hluti á sínu fyrsta tímabili hjá West Ham en var sennilega heppinn að fá að halda starfinu jafn lengi og raun bar vitni eftir slakt gengi í fyrra. Moyes hefur rétt West Ham-skútuna af þótt sigrarnir séu aðeins þrír í 12 leikjum undir hans stjórn. Hamrarnir eru þó komnir upp úr fallsæti. Tony Pulis fékk sparkið hjá West Brom 20. nóvember eftir 10 leiki í röð án sigurs. Alan Pardew tók við starfi Pulis. West Brom bíður enn eftir fyrsta deildarsigrinum undir hans stjórn. Þrátt fyrir að West Brom hafi ekki unnið leik síðan 19. ágúst, í 2. umferð, er liðið bara fjórum stigum frá öruggu sæti í ensku úrvalsdeildinni. Fjórum dögum fyrir jól var Paul Clement látinn fara frá Swansea City, eftir innan við ár í starfi. Undir stjórn Clements björguðu Svanirnir sér frá falli á síðasta tímabili. Í sumar leituðu Gylfi Þór Sigurðsson og Fernando Llorente á önnur mið og þar fór sóknarleikur Swansea á einu bretti. Liðið hefur aðeins skorað 13 mörk í 22 deildarleikjum í vetur. Portúgalinn Carlos Carvalhal var rekinn frá B-deildarliði Sheffield Wednesday á aðfangadag en fjórum dögum seinna var hann ráðinn stjóri Swansea. Carvalhal er fjórði stjóri Swansea á síðustu tveimur árum. Ekki er loku fyrir það skotið að áttundi stjórinn verði látinn taka pokann á næstunni. Mauricio Pellegrino, stjóri Southampton, situr í heitu sæti. Lítil ánægja er með störf hans en stuðningsmenn Southampton bauluðu á liðið í 0-1 sigri á Fulham á laugardaginn. Dýrlingarnir eru í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og í fallbaráttu eins og staðan er núna.
Enski boltinn Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur.“ Fótbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Dagskráin í dag: Undanúrslit deildabikarsins og Lokasóknin hitar upp fyrir Ofurskálina Sport Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Fleiri fréttir Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Sjá meira