Nýherji og dótturfélögin Applicon og TM Software hafa sameinast undir nafninu Origo. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Tilkynnt var um samrunann í október síðastliðnum en þá kom fram að Nýherji myndi sameinast dótturfélögum sínum á nýju ári.
„Þó að okkur hafi gengið vel með rekstur í aðskildum félögum teljum við mikla möguleika felast í sameiningu; með því að stilla upp heildstæðara lausnaframboði fyrir viðskiptavini, með markvissu markaðs- og sölustarfi, einfaldara skipulagi og auknu hagræði í rekstri,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Origo.
Hann segir að markmiðið sé að búa til alhliða þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. „Við viljum vera fyrsta val viðskiptavina í upplýsingatækni, skilja viðfangsefni þeirra, veita framúrskarandi þjónustu og bjóða snjallar lausnir, hvort sem þær eru okkar eigin eða frá öflugum samstarfsaðilum. Við höfum metnað fyrir því að viðskiptavinir okkar upplifi ekki eingöngu aukna breidd í starfsemi okkar, heldur einnig meira frumkvæði, nýsköpun og snerpu í þjónustunni, sem er nauðsynleg til að bregðast við þörfum atvinnulífsins í dag,“ segir Finnur.
Í tilkynningu frá Origo kemur enn fremur fram að markmiðið með sameiningunni sé að nýta styrkleika fyrirtækjanna þriggja til þess að skapa heildstætt framboð lausna í upplýsingatækni og efla þjónustu við viðskiptavini enn frekar.
Þá mun lausnaframboð Origo ná til flestra sviða upplýsingatækni, svo sem hýsingar- og rekstrarþjónustu, eigin hugbúnaðarþróunar og -lausna frá samstarfsaðilum, viðskiptalausna og innviða upplýsingakerfa. Auk þess mun Origo selja búnað og lausnir til fyrirtækja og einstaklinga frá mörgum af fremstu framleiðendum heims.
Samruni Nýherja, Applicon og TM Software tók formlega gildi 1. janúar 2018, segir í tilkynningu. Hjá Origo starfa 440 manns, langflestir í Reykjavík en einnig á Akureyri, Egilsstöðum, Neskaupstað og Ísafirði.
Nýherji og dótturfélögin sameinast undir nafninu Origo
Tengdar fréttir
Tekjusamdráttur Nýherja mikil vonbrigði
Tekjur upplýsingatæknifyrirtækisins Nýherja á öðrum fjórðungi ársins voru mun lægri en hagfræðideild Landsbankans hafði búist við og ollu vonbrigðum.
Bandarískur sjóður í hóp stærstu hluthafa Nýherja
Fjárfestingarsjóður á vegum bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Wellington Management er kominn í hóp stærstu hluthafa Nýherja með tæplega 1,8 prósenta hlut.
Heildarhagnaður Nýherja 266 milljónir fyrstu níu mánuði ársins
Á næsta ári Nýherji sameinast dótturfélögum sínum, TM Software og Applicon. Forstjóri Nýherja segir sameininguna vera þátt í eflingu rekstrar.