Lífið

Ástin spyr ekki um aldur: Garðar og Fanney eiga von á barni þrátt fyrir pungsparkið

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir eiga von á barni.
Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir eiga von á barni. Vísir/Anton Brink/Ungfrú Ísland
Garðar Gunnlaugsson fótboltamaður og Fanney Sandra Albertsdóttir eiga von á barni í sumar. Garðar greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í gær og er að vonum spenntur yfir tíðindunum.

„Í fótboltanum gekk lítið upp, mikil meiðsl og veikindi og svo auðvitað pungsparkið fræga,“ skrifar Garðar og vísar þar í erfið meiðsl sem hann glímdi við á árinu. Í sumar gekkst hann undir aðgerð á pung vegna höggs sem hann fékk í bikarleik ÍA gegn Leikni. Garðar greindi frá öllu ferlinu á Instagram og vakti umfjöllunin mikla athygli.

„En sparkið virðist ekki hafa haft áhrif því það er von á fjölgun í Garðarsson/dóttir-fjölskyldunni árið 2018,“ skrifar Garðar.

Sjá einnig: Garðar um pungsparkið: „Ég á nóg af börnum"

Nokkur aldursmunur er á hinum verðandi foreldrum en Garðar er fæddur árið 1983 og verður því 35 ára á árinu. Fanney, sem var valin Miss Talent Iceland í Ungfrú Ísland-keppninni sem haldin var í ágúst síðastliðnum, mun svo fagna tvítugsafmæli sínu á nýju ári. Því munar 15 árum á parinu.

Færslu Garðars má lesa hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.