Foreldrar í haldi grunaðir um að hafa haldið 13 börnum föngnum á heimili sínu Birgir Olgeirsson skrifar 15. janúar 2018 23:27 Þau sem eru í haldi heita David Allen Turpin, 57 ára, og Louise Anna Turpin, 49 ára. Vísir/Getty
Par er í haldi í Bandaríkjunum grunað um að hafa haldið börnum sínum föngum á heimili þeirra með því að hlekkja þau við rúm. 17 ára stúlku tókst að flýja heimilið í gær og hafa samband við lögregluna. Hún sagði 12 systkini sín í haldi foreldra þeirra á heimilinu í Kaliforníu og þau hefðu þurft að hírast þar í mörg ár við mikið harðræði. Bandaríska fréttastofan CNN segir frá því að stúlkan, sem er líkt og fyrr segir 17 ára gömul, hefði litið út fyrir að vera tíu ára gömul og frekar vannærð að sjá. Heimilið sem um ræðir er í borginni Perris í Kaliforníu-ríki en málið heyrir undir embætti lögreglustjórans í Riverside-sýslu. Í tilkynningu frá embættinu kom fram að systkini stúlkunnar sem voru í haldi væru á aldrinum tveggja ára til 29 ára. Þegar lögreglan fór inn á heimilið fann hún systkini stúlkunnar sem voru sum hver hlekkjuð við rúm. Litu þau einnig út fyrir að vera vannærð og höfðu greinilega lifað við mikinn óþrifnað. Þau sem eru í haldi heita David Allen Turpin, 57 ára, og Louise Anna Turpin, 49 ára. Þau hafa verið ákærð fyrir pyntingar og að stofna lífi barna í hættu. Sex af afkvæmum þeirra eru enn börn að aldri en þau eru vistuð á sjúkrahúsi þessa stundina. Afkvæmi parsins sem teljast fullorðin í skilningi laganna eru sjö talsins og eru einnig vistuð á sjúkrahúsi.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira