Aðeins eitt lið með léttara leikjaplan en Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2018 09:30 Mohamed Salah og Alex Oxlade-Chamberlain fagna marki Liverpool. Vísir/Getty
Stuðningsmenn Liverpool geta verið bjartsýnir þessa dagana enda lið þeirra að spila mjög vel í deildinni heima fyrir sem og í Meistaradeildinni. Liverpool liðið er svo gott sem komið áfram í Meistaradeildinni eftir 5-0 útisigur í fyrri leiknum á móti Porto í sextán liða úrslitunum og er með 10 stig og 11 mörk í síðustu fjórum deildarleikjum. Við þetta bætist síðan að Liverpool á auðveldari leikjadagskrá en öll lið deildarinnar nema Leicester en þetta kemur fram í sérstakri samantekt Sky Sports. Það eru aðeins tíu umferðir eftir af ensku úrvalsdeildinni og það er því farið að hitna vel undir baráttunni um fallið og baráttunni um Meistaradeildarsætin. Manchester City liðið náði sextán stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í gær og er svo gott sem búið að tryggja sér titilinn. Baráttan er aftur á móti hörð á öðrum stöðum í töflunni. Liverpool (57 stig) er eins og er í þriðja sæti á milli Manchester United (59 stig) og Tottenham (55 stig) en Englandsmeistarar Chelsea (53 stig) eru líka með í baráttunni um Meistaradeildarsætin. Arsenal (45 stig) er hinsvegar nú tíu sætum frá fjórða sætinu eftir tapði á móti Manchester City í gær. Liverpool á næstléttasta leikjaplanið en liðið á bara eftir tvo leiki á móti liði sem er inn á topp sex og meðalsæti mótherja Liverpool er tólfta sæti. Meðalsæti mótherja Leicester er 12,1 sæti. Chelsea (10,8 sæti), Manchester United (11,1 sæti) og Tottenham (11,5 sæti) eiga því öll aðeins erfiðari leikjaplan en Liverpool-liðið. Útlitið er ekki gott fyrir Brighton sem er í harðri fallbaráttu og á eftir mjög erfitt leikjaprógramm. Ekkert lið mætir fleiri liðum úr hópi þeirra sex efstu og meðalsæti mótherja Brighton er 7,1 sæti. Liðin í neðstu sætunum eins West Ham, Stoke, Newcastle, West Brom og Huddersfield eiga heldur ekkert auðvelt prógramm eftir en það er samt ekkert í líkingu við það hjá Brighton.Listi Sky Sports yfir léttasta leikjaplanið:(Sæti mótherja liðanna að meðaltali eins og staðan er í dag) Brighton 7,1 5 leikir á móti efstu sex West Ham 9,1 4 leikir á móti efstu sex Stoke City 9,4 4 leikir á móti efstu sex Newcastle 9,5 4 leikir á móti efstu sex West Brom 9,5 3 leikir á móti efstu sex Huddersfield 9,7 4 leikir á móti efstu sex Watford 9,9 4 leikir á móti efstu sex Crystal Palace 10,4 3 leikir á móti efstu sex Bournemouth 10,5 3 leikir á móti efstu sex Southampton 10,5 3 leikir á móti efstu sex Chelsea 10,8 3 leikir á móti efstu sex Swansea 11,0 3 leikir á móti efstu sex Man Utd 11,1 3 leikir á móti efstu sex Man City 11,2 3 leikir á móti efstu sex Burnley 11,3 2 leikir á móti efstu sex Tottenham 11,5 2 leikir á móti efstu sex Arsenal 11,6 1 leikur á móti efstu sex Everton 11,8 2 leikir á móti efstu sex Liverpool 12,0 2 leikir á móti efstu sex Leicester 12,1 2 leikir á móti efstu sex
Enski boltinn Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Willum snýr aftur í hollenska boltann Fótbolti Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslenski boltinn Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Fleiri fréttir Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira