Lífið

Jóhanna Guðrún og Davíð trúlofuð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhanna Guðrún og Davíð á góðri stundu árið 2014.
Jóhanna Guðrún og Davíð á góðri stundu árið 2014. vísir/valli
„Kannski kominn tími til að opinbera þetta leyndarmál,“ segir söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem opinberaði trúlofun sína með tónlistarmanninum Davíð Sigurgeirssyni á Facebook í gær.

Jóhanna lætur fylgja með kassamerkið #trúlofun og birtir fallega mynd með færslunni. Þar má sjá einstaklega glæsilegan trúlofunarhring á vinstri hendi söngkonunnar.

Hún stendur þessa dagana í ströngu en Jóhanna Guðrún keppir í skemmtiþættinum Allir geta dansað á Stöð 2 á sunnudagskvöldum.

Þar dansar hún með Maxim Petrov og hefur ekkert par fengið betri einkunn en einmitt þau.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.