Rússar prufukeyrðu „Satan 2“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. mars 2018 15:43 Satan 2 var skotið á loft í dag. Vísir/Skjáskot
Nýrri langdrægri eldflaug Rússa, sem kölluð er „Satan 2“, var skotið á loft í dag, ef marka má myndband sem rússneska varnarmálaráðuneytið birti í dag á Twitter. Í myndbandinu sést hvernig eldflauginni er skotið á loft frá Plesetsk-skotpallinum í Arkhangelsk-héraði í norðurhluta Rússlands. Hún fer af stað með miklum látum og þýtur svo úr augsýn. Vladimir Pútín, forseti Rússlands, minntist á flaugina í einu ávarpi sínu snemma í mánuðinum. „Ekkert öryggiskerfi mun standast kraft hennar,“ sagði Pútín, að því er fram kemur í frétt hinnar bandarísku FOX-fréttastofu.На космодроме #Плесецк проведены очередные бросковые испытания новой жидкостной #МБР тяжёлого класса #Сармат, которая заменит ракеты #Воевода pic.twitter.com/xedqG7106E— Минобороны России (@mod_russia) March 30, 2018 Þróun á eldflauginni, sem hefur iðulega verið kölluð Satan 2 innan Atlantshafsbandalagsins, hefur staðið yfir í nokkur ár. Vonast Rússar til þess að flaugin leysi forvera sinn, langdrægu eldflaugina Voyevoda, af hólmi. Sú flaug gekk undir nafninu Satan. Eldflaugatilraunin hófst aðeins nokkrum klukkutímum eftir að Rússar tilkynntu um að þeir hygðust vísa 60 bandarískum erindrekum úr landi. Um er að ræða svar Rússa við ákvörðun Bandaríkjamanna og annarra þjóða sem hafa rekið rússneska sendiráðsstarfsmenn úr landi vegna Skripal-málsins svokallaða.
Tengdar fréttir Segir Rússa ekki komna í öngstræti Rússar hafa mætt mótbyr eftir að ráðist var á gagnnjósnarann fyrrverandi Sergei Skrípal og dóttur hans með taugaeitri 29. mars 2018 07:00 Rússar svara í sömu mynt og reka tugi erindreka úr landi Rússar hafa rekið 60 bandaríska erindreka úr landi og lokað ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í St. Pétursborg. 29. mars 2018 17:36 Íslenskum yfirvöldum hefur ekki verið tilkynnt um fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir Rússa Rússar greindu frá því í gær að þeir hyggist vísa sextíu bandarískum sendiráðsstarfsmönnum úr landi. 30. mars 2018 14:12 Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira
Segir Rússa ekki komna í öngstræti Rússar hafa mætt mótbyr eftir að ráðist var á gagnnjósnarann fyrrverandi Sergei Skrípal og dóttur hans með taugaeitri 29. mars 2018 07:00
Rússar svara í sömu mynt og reka tugi erindreka úr landi Rússar hafa rekið 60 bandaríska erindreka úr landi og lokað ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í St. Pétursborg. 29. mars 2018 17:36
Íslenskum yfirvöldum hefur ekki verið tilkynnt um fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir Rússa Rússar greindu frá því í gær að þeir hyggist vísa sextíu bandarískum sendiráðsstarfsmönnum úr landi. 30. mars 2018 14:12