Innanríkisráðherra Breta segir af sér Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2018 22:16 Amber Rudd, fyrrverandi innanríkisráðherra Bretlands. Vísir/AFP
Amber Rudd, innanríkisráðherra Bretlands, hefur sagt af sér vegna Windrush-málsins svokallaða. Það mál snýst um kynslóð innflytjenda frá Jamaíka og framkomu yfirvalda í þeirra garð. Ráðuneyti hennar hafði sett sér markmið um að vísa ákveðnum fjölda innflytjenda á brott og hafði Rudd verið margsaga um aðkomu sína að því markmiði.Guardian birti í dag bréf frá Rudd til Theresu May, forsætisráðherra, sem sent var í janúar í fyrra. Þar segir Rudd að hún ætli sér að færa fjárveitingar frá almennri löggæslu til þess að vísa mun fleiri innflytjendum frá landi en gert hefur verið á síðustu árum.Rudd hafði áður sagt að ráðuneytið hefði ekki sett slík markmið. Hún breytti síðan sögu sinni og sagðist ekki hafa vitað af þeim. Eftir að Guardian birti minnisblað um áðurnefnd markmið ráðuneytisins sagðist hún aldrei hafa séð það og svo birti Guardian áðurnefnt bréf nú í kvöld sem virðist hafa verið kveikjan að afsögn Rudd.Þessar aðgerðir komu verulega niður á innflytjendum frá Jamaíka sem settust að í Bretlandi á fimmta og áttunda áratug síðustu aldar. Þau höfðu verið skilgreind sem ólöglegir innflytjendur og hafði verið meinaður aðgangur að heilbrigðisþjónustu og ýmsu öðru.
Jamaíka Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Sjá meira