Leita breskrar stúlku sem hvarf í Þýskalandi fyrir 37 árum Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. maí 2018 14:44 Katrice Lee hvarf á tveggja ára afmælisdaginn sinn, þann 28. nóvember 1981. Vísir/EPA
Leit stendur nú yfir að breskri stúlku sem hvarf í Þýskalandi fyrir 37 árum. Faðir stúlkunnar segir það martraðarkennt að snúa aftur á staðinn þar sem dóttir hans hvarf og gagnrýnir bresk stjórnvöld fyrir að hefja rannsókn á hvarfi hennar að nýju. Ekkert hefur spurst til hinnar bresku Katrice Lee síðan hún varð viðskila við móður sína, Sharon, í Naafi-stórmarkaði í grennd við þýsku borgina Paderborn þann 28. nóvember 1981. Katrice átti tveggja ára afmæli þann dag. Lee-fjölskyldan var búsett í Þýskalandi þar sem Richard, faðir Katrice, starfaði fyrir breska herinn en Richard og Sharon hafa ávallt haldið því fram að Katrice hafi verið rænt.Í grænum bíl á brú yfir Alme-ána Leitin að Katrice hófst að nýju á mánudag við Alme-ána í vesturhluta Þýskalands. Um hundrað manns standa að leitinni en gert er ráð fyrir að leitað verði í fimm vikur.Frá leitinni við Alme-ána. Breskir hermenn eru stór hluti leitarmanna en nokkuð stórt svæði við ána hefur verið grafið upp.Vísir/EPALeit beinist að Alme-svæðinu vegna þess að daginn sem Katrice hvarf sást til karlmanns halda á barni, sem svipaði til Katrice, í grennd við Naafi-stórmarkaðinn. Daginn eftir sást til sama manns þar sem hann hafði lagt grænum bíl á brú yfir Alme-ána. Martraðarkennt að vera kominn aftur Rannsókn á hvarfi Katrice hefur verið umdeild en árið 2012 játaði lögregla á sig mistök við framkvæmd hennar. Landamæraverðir voru t.d. ekki látnir vita af hvarfi Katrice og heilar sex vikur liðu frá því að Katrice hvarf og þangað til skýrslur voru teknar af starfsfólki stórmarkaðarins.Richard Lee, faðir Katrice, ræðir við blaðamenn á leitarsvæðinu við Alme-ána í Þýskalandi í dag.Vísir/EPARannsókninni var því hrint af stað að nýju 2012 fyrir tilstilli breska varnarmálaráðuneytisins. Richard, faðir Katrice, hefur verið mjög andvígur því að hvarf dóttur hans sé nú rannsakað aftur. Hann hefur sagt rannsóknina til þess gerða að halda upplýsingum um hvarfið leyndu fyrir fjölskyldunni. Richard vitjaði leitarinnar í Þýskalandi í vikunni og sagði það martraðarkennt að vera kominn aftur. „Þetta er skelfilegt, alveg skelfilegt. Þetta er afturhvarf til martraðar minnar,“ tjáði Richard blaðamanni BBC í vikunni. Þá hefur hann ekki trú á því að Katrice finnist við leitina en sagðist hafa snúið aftur á leitarsvæðið til að heiðra minningu hennar. Gert er ráð fyrir að frekari upplýsingar um leitina verði birtar á blaðamannafundi í dag, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins.
Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira