Valdimar og Sigurborg hafa farið í eina óvissuferð í mánuði 28 sinnum í röð Stefán Árni Pálsson skrifar 16. maí 2018 10:30 Einstaklega skemmtileg hefð.
Valdimar Víðisson og Sigurborg Geirdal settu sér það markmið fyrir þremur árum að standa fyrir einni óvissuferð í mánuði og hafa staðið við það allar götur síðan. Síðan þá hafa þau prófað ótal nýja hluti saman. Hjónin hafa undanfarin ár farið rækilega út fyrir þægindarammann einu sinni í mánuði með því að gera eitthvað saman sem þau hafa ekki gert áður. Þau skipta með sér mánuðum og halda því eina óvissuferð í mánuði. Uppátækið byrjaði sem áramótaheit sem hefur undið upp á sig. „Við fáum bara hvort sinn mánuð. Hann byrjaði og tók janúar og svo tók ég febrúar. Við bara plönum eitthvað sem við höfum ekki gert áður. Það hefur alltaf verið skemmtilegt, en samt misskemmtilegt,“ segir Sigurborg Geirdal í þættinum Ísland í dag sem var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi. Eins og staðan er hafa þau farið saman í 28 óvissuferðir.Einu sinni fóru þau saman í limmó í 80´s fatnaði.„Þetta er allt frá því að fara í bingó í Vinabæ, Adrenalíngarðinn, froðudiskó,“ segir Valdimar en eina skilyrðið er að þau hafi aldrei gert þetta saman. „Við erum kannski að plana fjóra til átta mánuði fram í tímann og síðan er það bara að plana og fara á netið og finna tíma. Síðan látum við alltaf hinn aðilann vita með góðum fyrirvara svo hægt sé að skipuleggja sig. Þetta er allt frá því að vera eitthvað flipp yfir í eitthvað sem tekur á.“ Einu skilaboðin sem þau fá er bara hvernig þau eiga að vera klædd hverju sinni. „Eins og á morgun er ég með 28. óvissuferðina okkar og hann veit bara að hann á að vera tilbúin klukkan átta um kvöld og á að vera snyrtilega klæddur, og svo veit hann ekki meir,“ segir Sigurborg. Hér að neðan má sjá innslagið um þau hjón frá því í gærkvöldi.
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Titanic? Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verkefnum? Áskorun Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Fleiri fréttir Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Sjá meira