Lífið

Tíska og tónlist í fyrirúmi í nýju listarými

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Það eru þau Elma Dögg Steingrímsdóttir, Natalia Sushchenko og Árni Guðjónsson sem standa að rýminu.
Það eru þau Elma Dögg Steingrímsdóttir, Natalia Sushchenko og Árni Guðjónsson sem standa að rýminu. Vísir/eyþór
Listarýmið Kvartýra°49 verður opnað á morgun í bakhúsi við Laugaveginn. Það eru þau Elma Dögg Steingrímsdóttir, Árni Guðjónsson og Natalia Sushchenko sem standa fyrir opnun rýmisins þar sem tónlist og tíska verða í fyrirrúmi.

„Þetta er verslun að hluta til þar sem við verðum með föt frá skemmtilegum, ungum hönnuðum og frekar öðruvísi en það sem hefur verið á Íslandi,“ segir Elma Dögg. Merkin sem verða í boði eru til dæmis Études (FR), Nanushka (HU), Reike Nen (KR), Solace London (UK), SNDKT (UA), Masha Reva (UA), Sputnik 1985 (RU), Baserange (FR), House of Holland (UK) og Ashley Williams (UK).

„Svo er þetta líka tónlistarrými því að hann Árni þekkir vel til í tónlistarbransanum hérna á Íslandi og ætlar að stýra tónlistarhorni. Stefnan er að vera með tónlistarmann mánaðarins. Við erum búin að heyra í Övari Smárasyni, sem er einmitt að gefa út plötu núna – hann verður fyrsti listamaðurinn. Árni verður líka með podcast samhliða þessu þar sem hann tekur viðtal við listamann mánaðarins. Við verðum með sterkan fókus í tónlistinni þar sem við veljum fimm vínylplötur í sölu hverju sinni.“

Elma segir rýmið vera þannig byggt að auðvelt sé að færa hluti til og búa til pláss fyrir tónleika, en á morgun verður einmitt slegið upp tónleikum í rýminu samhliða því að opnun þess verður fagnað. Berndsen og Quest stíga þar á svið og vígja staðinn.

„Það er kaffihorn líka, þannig að það er hægt að setjast niður og skoða blöð með kaffibollanum, en við verðum með sérpöntuð tímarit sem er ekki hægt að finna í bókabúðunum.“

Partíið hefst klukkan sex á fimmtudaginn og í boði verða drykkir. Gestir eru hvattir til að mæta með gulan hlut og hlýtur sá sem mætir með frumlegasta hlutinn verðlaun. Rétt er að benda á að til að komast á gestalista er nauðsynlegt að skrá sig á Facebook-viðburði veislunnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.