Stoke City keypti einn af mótherjum Íslands á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júní 2018 15:15 Oghenekaro Etebo, númer 8, með félögum sínum í nígeríska landsliðinu. Vísir/Getty
Nígeríumaðurinn Oghenekaro Etebo spilar í Englandi á næsta tímabili en Stoke City keypti nígeríska landsliðsmanninn í dag. Stoke City féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor og spilar í b-deildinni næsta vetur. Oghenekaro Etebo er 23 manna hópi Nígeríu á HM í fótbolta í Rússlandi og er því einn af mótherjum íslenska landsliðsins á mótinu. Ísland mætir Nígeríu í sínum öðrum leik sem fer fram 22. júní næstkomandi. Stoke borgar portúgalska félaginu Feirense 6,35 milljónir punda fyrir þennan 22 ára miðjumann. Oghenekaro Etebo hefur skorað eitt mark i fjórtán landsleikjum og kom það mark á móti Egyptalandi árið 2016.#WelcomeEtebo Stoke City are delighted to announce the signing of Nigerian international Oghenekaro Peter Etebo on a five-year contract The 22-year-old midfielder joins the Potters from Portuguese side Feirense for a fee of €7.2millionhttps://t.co/4LN7rTGH0h#SCFC pic.twitter.com/8CKm7JKT3E — Stoke City FC (@stokecity) June 11, 2018 Oghenekaro Etebo var á láni hjá spænska félaginu Las Palmas á nýlokinni leiktíð en hann fór til spænska liðsins í janúar. Hans besta staða er framliggjandi miðjumaður en hann getur líka spilað aftar á miðjunni sem og í bakverði.#WelcomeEtebo Get to know new signing Oghenekaro Peter Etebo a little better with our fact filehttps://t.co/KyoDlkLu7S#SCFC pic.twitter.com/7xy9admWIW — Stoke City FC (@stokecity) June 11, 2018 Gary Rowett, knattspyrnustjóri Stoke, er ánægður með nýja leikmanninn. „Etebo er mjög hreyfanlegur og orkumikill leikmaður sem er á frábærum aldri. Hann hefur spilað í efstu deild í Portúgal og á Spáni og svo er hann auðvitað á leiðinni á HM með Nígeríu sem verður stórkostleg lífsreynsla fyrir hann,“ sagði Gary Rowett.
Enski boltinn Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Danir verða mótherjar Íslands í undanúrslitunum Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Dagur og lærisveinar í undanúrslit og sendu Ísland niður í annað sætið Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti Alfreð stýrði Þjóðverjum inn í undanúrslitin á EM Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira