Lífið

Voru orðin hjón þegar þau trúlofuðu sig

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hjónin Offsett, sem er einn þriggja meðlima rappsveitarinnar Migos, og Cardi B, sem hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn síðastliðna mánuði, eiga von á sínu fyrsta barni saman.
Hjónin Offsett, sem er einn þriggja meðlima rappsveitarinnar Migos, og Cardi B, sem hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn síðastliðna mánuði, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Vísir/Getty
Tónlistarfólkið og stjörnuparið Cardi B og Offset, sem trúlofuðu sig með mikilli viðhöfn í október síðastliðnum, greindu frá því í gær að þau hefðu gift sig áður en Offset fór á skeljarnar.

Slúðurmiðillinn TMZ greindi fyrstur frá því að hjónin hefðu sótt um hjúskaparvottorð þann 20. september 2017, og höfðu þau þá þegar gengið í hnapphelduna.

Sjá einnig: Cardi B uppljóstrar leyndarmáli sínu: „Ég er loksins frjáls“

Eftir að fréttir bárust af ráðahag hjónanna hafa aðdáendur þeirra keppst við að tína til vísbendingar um hjónabandið. Offsett þakkaði til að mynda „eiginkonu sinni“ er hann tók við verðlaunum á BET-verðlaunahátíðinni í fyrradag og þá hefur Cardi B oft tileinkað sér eiginkonutitilinn í textum laga sinna.

Sjálf staðfesti Cardi B fréttirnar á Twitter-reikningi sínum í gær. Þar sagðist hún hafa viljað halda hjónabandi sínu leyndu vegna alls sem á undan hefði gengið en parið hefur nokkrum sinnum hætt saman frá því að þau hófu að stinga saman nefjum.

„Ég kann svo vel að meta, og elska, eiginmann minn fyrir að vilja veita mér þetta einstaka augnablik sem hverja einustu stúlku dreymir um, þegar hann fór á skeljarnar og dró hring á fingur mér og hann gerði það fyrir mig!!“ skrifaði Cardi B á Twitter-reikningi sínum í gær.

Bónorð Offset vakti mikla athygli á sínum tíma en hann bað Cardi B fyrir framan áhorfendaskara á tónleikum þess fyrrnefnda með rappsveitinni Migos í október síðastliðnum. Hjónin eiga nú von á sínu fyrsta barni saman.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.