Tveir framtíðarmenn Arsenal í læknisskoðun í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2018 12:45 Lucas Torreira og Kylian Mbappe í leik Úrúgvæ og Frakka í 8 liða úrslitum HM. Vísir/Getty
Enskir miðlar segja frá því að Arsenal sá að fá tvo leikmenn í læknisskoðun í dag en þetta eru 22 ára Úrúgvæmaður og 19 ára Frakki. BBC segir að úrúgvæski miðjumaðurinn Lucas Torreira og franski miðjumaðurinn Matteo Guendouzi séu við það að ganga frá samningum við Arsenal.Arsenal boss Unai Emery's fourth and fifth signings are imminent. Lucas Torreira and Matteo Guendouzi are set to have their medicals today. Full story: https://t.co/Cr46PZS9sapic.twitter.com/FW4NVt93VD — BBC Sport (@BBCSport) July 9, 2018 Lucas Torreira er 22 ára og var í stóru hlutverki á miðju Úrúgvæ á HM í Rússlandi. Arsenal mun borga ítalska félaginu Sampdoria 26 milljónir punda fyrir hann. Arsenal var búið að ná samkomulagi við Sampdoria fyrir HM en Torreira hafði unnið sig inn í byrjunarliðið fyrir HM. Hann á nú að baki átta landsleiki. Lucas Torreira er ekki hávaxinn eins og menn tóku eflaust eftir á HM (168 sm) en hann tapar ekki mörgum tæklingum og er sannkallað vinnudýr inn á miðjunni. Hann er búinn að spila með Sampdoria undanfarin tvö tímabil en skoraði 4 mörk í 36 leikjum á síðustu leiktíð. Matteo Guendouzi er 19 ára og hefur spilað með 20 ára landsliði Frakka. Hann komst þó ekki í HM-hóp franska landsliðsins en það er líka mjög erfitt. Guendouzi kemur frá Lorient og þykir líkleg framtíðarstjarna hjá Frökkum en hann er fæddur í april 1999. Unai Emery, nýr stjóri Arsenal, hafði áður fengið þrjá nýja leikmenn til félagsins en það eru Svisslendingurinn Stephan Lichtsteiner (frá Juventus), þýski markvörðurinn Bernd Leno (frá Bayer Leverkusen) og gríski varnarmaðurinn Sokratis Papastathopoulos (frá Borussia Dortmund).
Enski boltinn Mest lesið Sviss - Ísland 38-38 | Strákarnir okkar stálu stigi eftir slakan leik Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti „Góðu hliðarnar eru helvíti góðar“ Handbolti Bjarki Már reyndi að taka Óðin á taugum Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Svona er staðan: Strákarnir okkar þurfa að treysta á sænskt eða króatískt tap Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira