Innblástur frá seiðkörlum og skógarmunkum Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. júlí 2018 06:00 Hljómsveitin Gringlo gefur út fyrri hluta tveggja plötu verks í dag. Diana Sus „
Í ársbyrjun 2014 fékk ég taugaáfall sem fékk mig til að endurhugsa líf mitt og allan minn tilgang alveg frá grunni. Það var erfitt að byggja sig upp aftur eftir áfallið en ég var staðráðinn í að finna innri frið. Sálarkrísan hrinti af stað ákveðinni atburðarás og andlegu ferðalagi sem leiddi mig á ýmsar framandi slóðir næstu árin. Allt frá seiðkörlum í Amazon-skóginum og jógameisturum á Indlandi til skógarmunka í Suðaustur-Asíu. Ég hitti marga kennara á leið minni en tónlistin varð minn stærsti kennari. Lögin á plötunni sækja beinan innblástur í þetta ferðalagið, fólkið sem ég hitti á leiðinni og lexíurnar sem ég lærði,“ segir Ivan Mendez, aðalsprauta hljómsveitarinnar Gringlo, sem gefur út sína fyrstu plötu í dag. Um er að ræða EP-plötu sem nefnist From Source. Hljómsveitina skipa þeir Ivan Mendez sem sér um söng og gítarleik, en hann semur einnig lög og texta, Guðbjörn Hólm, bassaleikari og bakraddasöngvari, Guðjón Jónsson, píanó- og hljómborðsleikari, og trommuleikarinn Arnar Scheving. Ivan tók plötuna upp sem hluta af námi sínu en hann var á brautinni Skapandi tónlist við Tónlistarskólann á Akureyri. Upptökur fóru fram í hljóðveri Tónlistarskólans í Menningarhúsinu Hofi. Ivan fékk með sér heilan helling af gestum sem hjálpuðu til við upptökur á plötunni en þeir eru: Andrea Gylfadóttir (selló), Haukur Pálmason (slagverk), Hjörleifur Örn Jónsson (klassískt slagverk), Kristján Edelstein (rafmagnsgítar), Gert-Ott Kuldparg (sópransax), Edda Guðný Örvarsdóttir (tenórsax), Helgi Svavar Þorbjörnsson (horn), Þorkell Ásgeir Jóhannsson (básúna) og Þórhildur Örvarsdóttir (vocal producer).From Source nefnist platan og á henni eru 6 lög.Vegna þess að platan var hluti af námi Ivans var ákveðin tímapressa á honum að klára hana. „Það var pressa á mér að klippa og skila öllum upptökum fyrir lok skólaársins. Það eru auðvitað kostir og gallar við það að vinna undir tímapressu. Kostirnir eru þeir að það gefur manni mikinn kraft og oft verða til hlutir sem mann hafði ekki órað fyrir. Með þessu móti finnst mér ég oft læra mest, með því að setja sjálfan mig í aðstæður sem ég er ekki alveg viss um að ég höndli og síðan bara vinn ég mig í gegnum þær. Ef maður horfir í baksýnisspegilinn þá eru kannski einhverjir hlutir sem maður hefði geta gert öðruvísi eða spáð meira í, það er kannski gallinn við tímapressuna. Síðan er auðvitað hægt að halda áfram að spá í útsetningar og smáatriði út í hið óendanlega, en maður verður að sleppa tökum á sköpunarverkinu á einhverjum tímapunkti. Fullkomnunaráráttan gerir manni oft erfitt fyrir í þeim efnum.“ Á næsta ári ætlar sveitin að gefa út aðra plötu sem virkar eins og framhald, næsti hluti plötunnar og myndast þá heild sem þeir hyggjast gefa út sem breiðskífu sem þá kemur út á geisladisk og vínyl. „Í seinni hluta verksins held ég áfram að kafa dýpra í þetta ferðalag og að miðla speki hjartans, speki sem er aðgengileg öllum þeim sem kunna að hlusta með opnu hjarta og kyrrum hug.“ Plötuna má nálgast á Spotify.
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Peabo Bryson er látinn Tónlist Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira