Bandarískur sjóður fjárfestir í 66°Norður Hörður Ægisson skrifar 18. júlí 2018 06:00 Sjóklæðagerðin 66°Norður rekur tíu verslanir hér á landi og þrjár í Kaupmannahöfn og jukust heildartekjur félagsins um liðlega sex prósent í fyrra, námu samtals um 3,86 milljörðum íslenskra króna Fréttablaðið/Anton Brink
Bandarískur fjárfestingarsjóður hefur eignast tæplega helmingshlut í Sjóklæðagerðinni 66°Norður. Gengið var frá kaupunum í byrjun þessa mánaðar og nemur kaupverðið fyrir hlutinn um 30 milljónum evra, jafnvirði um 3,7 milljarða íslenskra króna, samkvæmt heimildum Markaðarins. Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri fyrirtækisins, staðfestir að búið sé að selja minnihluta í fyrirtækinu. Eigendur 66°Norður, sem eru hjónin Helgi og Bjarney Harðardóttir, hafi á undanförnum mánuðum unnið að því í samvinnu við ráðgjafarfyrirtækið Rothschild í London að fá inn erlendan fjárfesti til að tryggja fjármögnun á áframhaldandi uppbyggingu félagsins erlendis. „Þeirri fjármögnun er nú lokið og hefur alþjóðlegur fjárfestingarsjóður, sem hefur mikla trú á merkinu, keypt minnihluta í félaginu. Engin breyting er á stjórn eða lykilstjórnendum félagsins,“ segir í svari hans við fyrirspurn Markaðarins.Helgi Rúnar Óskarssko, forstjóri 66°Norður66°NORÐUREkki fást staðfestar upplýsingar um nafn kaupandans en eftir því sem Markaðurinn kemst næst er um að ræða bandarískan sjóð sem hefur ekki áður komið að fjárfestingum á Íslandi. Samkvæmt heimildum blaðsins festi sjóðurinn kaup á stórum minnihluta í fyrirtækinu, eða nærri fimmtíu prósenta hlut, en miðað við kaupverðið er heildarvirði 66°Norður því í kringum sjö milljarðar króna. Auk Rothschild var Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, á meðal ráðgjafa seljanda í viðskiptunum. Helgi og Bjarney hafa verið eigendur að öllu hlutafé 66°Norður í gegnum eignarhaldsfélagið BH Holding en þau eignuðust fyrirtækið að fullu árið 2013 þegar þau keyptu 49 prósenta hlut af félagi í eigu Sigurjóns Sighvatssonar. Hjónin komu hins vegar fyrst inn í hluthafahópinn árið 2011 þegar þau, ásamt framtakssjóði í stýringu Stefnis, eignuðust 51 prósents hlut í 66°Norður í gegnum samlagshlutafélagið SF II. Skömmu síðar urðu erfiðleikar í samstarfi til þess að þau Helgi og Bjarney keyptu sjóð Stefnis út. Heildartekjur 66°Norður, sem rekur tíu verslanir hér á landi og þrjár í Kaupmannahöfn, jukust um sex prósent í fyrra og námu samtals um 3,86 milljörðum króna. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs jókst velta félagsins um rúmlega fjórðung frá sama tímabili árið áður. Fyrirtækið hefur hins vegar verið rekið með tapi síðustu ár og á árinu 2017 var tapið um 115 milljónir. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam tæplega 161 milljón á síðasta ári og minnkaði um 65 milljónir frá fyrra ári. Heildareignir félagsins í árslok 2017 námu tæplega 3,3 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall þess um 3,8 prósent. Sjóklæðagerðin 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki á Íslandi, en það hóf starfsemi árið 1926, og hjá félaginu starfa samtals um 450 manns, á Íslandi, í Danmörku og Lettlandi, þar sem fyrirtækið er með verksmiðju.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Fjárfesting í innviðum hefur skilað sér Vöxtur hagnaðar án einskiptisaðgerða og skipulagsbreytinga nam rúmum átta prósentum hjá Sjóklæðagerðinni 66°NORÐUR á milli áranna 2014 og 2015. Gríðarleg fjárfesting hefur verið í vöruþróun, markaðssetningu og verslunum fyrirtæk 21. september 2016 12:00 Níutíu ára frumkvöðlafyrirtæki Íslendingar ættu að sérhæfa sig í hönnun og hugviti fremur en að keppa í framleiðslu við bestu verksmiðjur heims. Bjarney Harðardóttir, markaðsstjóri 66°Norður, segist stolt af erlendri framleiðslu fyrirtækisins. 16. júní 2016 07:00 Mest lesið „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Atvinnulíf Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Sjá meira
Fjárfesting í innviðum hefur skilað sér Vöxtur hagnaðar án einskiptisaðgerða og skipulagsbreytinga nam rúmum átta prósentum hjá Sjóklæðagerðinni 66°NORÐUR á milli áranna 2014 og 2015. Gríðarleg fjárfesting hefur verið í vöruþróun, markaðssetningu og verslunum fyrirtæk 21. september 2016 12:00
Níutíu ára frumkvöðlafyrirtæki Íslendingar ættu að sérhæfa sig í hönnun og hugviti fremur en að keppa í framleiðslu við bestu verksmiðjur heims. Bjarney Harðardóttir, markaðsstjóri 66°Norður, segist stolt af erlendri framleiðslu fyrirtækisins. 16. júní 2016 07:00