Tónlist

Cardi B með flestar tilnefningar til myndbandaverðlauna MTV

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Cardi B er með flestar tilnefningar
Cardi B er með flestar tilnefningar Vísir/Getty
Tilnefningar til MTV myndbandaverðlaunanna hafa verið kynntar og er það en verðlaunin verða veitt þann 20.ágúst næstkomandi í Radio City Music Hall.

Söngkonan Cardi B er með flestar tilnefningar eða 10 talsins. Hún er meðal annars tilnefnd fyrir myndband ársins, listamaður ársins og lag ársins. Hjónakornin Beyoncé og Jay-Z fylgja fast á hæla Cardi B en þau eru með 8 tilnefningar.

Childish Gambino og Drake eru þar næstir með sjö tilnefningar hvor. Þar á eftir koma Bruno Mars með sex tilnefningar og Ariana Grande og Camila Cabello eru með fimm tilnefningar báðar.

Myndband Childish Gambino við lagið This is America er meðal annars tilnefnt í flokknum tónlistarmyndband ársins og sem besta myndband með skilaboð. Myndbandið hefur vakið talsverða athygli en þar er vakin athygli á faraldri byssuofbeldis í Bandaríkjunum, lögregluofbeldi og fleiri samfélagslegum vandamálum. 

Tónlistarmaðurinn Drake er einnig tilnefndur fyrir tónlistarmyndband ársins við lagið sitt God‘s Plan. Þar sést Drake heilsa upp á aðdáendur sína, gefa peninga til góðgerðarmálefna og gefa börnum leikföng.

Söngkonan Camila Cabelo er meðal annars tilnefnd í flokknum lag ársins fyrir lagið sitt Havana. Myndbandið við það lag byrjar eins og spænsk sápuópera með tilheyrandi dramatík. Það er ekki fyrr en tvær og hálf mínúta er búin af myndbandinu að lagið sjálft byrjar að heyrast.

Lista yfir allar tilnefningarnar má finna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.