Á leið til Fulham eftir að hafa verið orðaður við stærstu lið heims Arnar Geir Halldórsson skrifar 12. júlí 2018 08:30 Jean-Michael Seri vísir/getty
Fílbeinsstrendingurinn Jean-Michael Seri er við það að ganga til liðs við nýliða Fulham í ensku úrvalsdeildinni þar sem tilboð Lundúnarliðsins upp á 35 milljónir punda virkjar ákvæði í samningi kappans. Fulham vonast til þess að ganga frá kaupunum um helgina en Seri hefur verið í lykilhlutverki á miðju Nice undanfarin þrjú ár. Fari svo að Fulham nái að ganga frá samningum við þennan 26 ára gamla miðjumann verður það að teljast nokkuð óvænt félagaskipti þar sem hann hefur verið orðaður við stærstu lið heims frá því síðasta sumar. Hann var til að mynda hársbreidd frá því að ganga í raðir Barcelona síðasta sumar en Nice neitaði þá að selja hann, leikmanninum til mikillar óánægju og fór hann um tíma í verkfall til að mótmæla ákvörðun franska félagsins. Hann kom fljótt til baka úr því og átti gott tímabil í frönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þar sem Nice hafnaði í 8.sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Seri er nú staddur í London þar sem hann á í viðræðum við Fulham en enskir fjölmiðlar töldu fyrst að hann væri kominn til Lundúna til að ræða við Arsenal eða Chelsea þar sem Seri hefur verið orðaður við þau lið auk Borussia Dortmund. Fulham vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni með sigri á Aston Villa í úrslitaleik umspilsins á Wembley en liðið hafnaði í þriðja sæti B-deildarinnar á síðustu leiktíð. Fulham lék síðast í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2013-2014.
Enski boltinn Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti Svona er staðan: Ekkert svigrúm hjá strákunum okkar Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Handbolti „Góðu hliðarnar eru helvíti góðar“ Handbolti Bjarki Már reyndi að taka Óðin á taugum Handbolti Sviss - Ísland | Leikur sem verður að vinnast Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira