Puel segir ekki koma til greina að selja Maguire Arnar Geir Halldórsson skrifar 24. júlí 2018 09:30 60 milljón punda maður? vísir/getty
Enski landsliðsmiðvörðurinn Harry Maguire er sagður vera efstur á óskalista Manchester United en enska stórveldið leitar logandi ljósi að nýjum miðverði. Ásamt Maguire hafa Toby Alderweireld, Leonardo Bonucci og Jerome Boateng verið orðaðir við Man Utd að undanförnu en talið er að Maguire sé langdýrastur af þessum fjórum og hafa enskir fjölmiðlar greint frá því að Leicester verðmeti hann á rúmlega 60 milljónir punda. Leicester borgaði 12 milljónir punda þegar félagið keypti Maguire frá Hull síðasta sumar en með þessum háa verðmiða vonast þeir væntanlega til að fæla stærri félög frá. Maguire er 25 ára gamall og telur Claude Puel, stjóri Leicester, að hag hans sé best borgið hjá félaginu. „Það er gott fyrir Maguire að halda áfram hjá Leicester. Þegar okkar leikmenn vekja áhuga annara liða þýðir það að við erum að gera vel og vinna gott starf. Það er mikilvægt að halda því áfram.“ „Þegar við fáum leikmennina sem voru á HM til baka munum við veita þeim tækifæri til að uppfylla sínar væntingar og ná góðum árangri í ensku úrvalsdeildinni,“ segir Puel.Man Utd og Leicester mætast í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar föstudaginn 10.ágúst næstkomandi.
Enski boltinn Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Styrkir til VÍK Sport Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn bjargaði leikmanni Fylkis | Myndir Íslenski boltinn Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Aron Einar: Maður á eftir að fatta þetta almennilega Fótbolti Fleiri fréttir Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Sjá meira