Jim Ratcliffe og Kristján Fjallaskáld Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 2. ágúst 2018 07:00 „Þegar maður leggur af stað ræður maður ekki ferðinni,“ segir Eyþór Árnason afmælisbarn. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Skepnur eru vitlausar í þetta er ný ljóðabók eftir Eyþór Árnason. Höfundurinn segir að þar sé farið í ýmsar áttir. „Þegar maður leggur af stað ræður maður ekki ferðinni. Þarna er heilmikið af sveitaljóðum af því að ég er óforbetranlegur sveitamaður. Ég var lengi í Skagafirðinum áður en ég kom til Reykjavíkur, var að verða þrítugur þegar ég flutti þaðan endanlega. Þarna eru líka nokkur minningaljóð um fólk sem ég hef kynnst og ekki kynnst. Svo eru draumar og hugleiðingar og ljóð sem fjalla um plötuumslög, en ég hlustaði mikið á músík í gamla daga.“Heljarmenni og ofurkonur Þarna er ljóð um Jón Arason en Eyþór segist hafa sterkar taugar til hans. „Árið 1974 var ég á Hólum í Hjaltadal og þá kom leikhópur frá Þjóðleikhúsinu og sýndi Jón Arason að mig minnir á þjóðhátíð. Það var ógurlega gott veður og skriður hrundu úr fjallinu þannig að allt varð þetta mjög dramatískt og ógleymanlegt.“ Í einu ljóði tengir Eyþór saman auðmanninn Jim Ratcliffe og Kristján Fjallaskáld á snjallan hátt. „Hugmyndin að því ljóði varð til fyrir tveimur árum. Þá fórum við nokkur ljóðskáld í ferðalag um Austurland. Þetta var mjög skemmtilegt kompaní. Þarna var Elísabet Jökulsdóttir með í för og hún las Dettifoss við Dettifoss. Við fórum að leiði Kristjáns og þá fékk ég hugmynd um að yrkja um hann ljóð. Það leið ár áður en ljóðið fæddist og svo smellpassar það við tímann.“ Eyþór segist hugsi yfir umsvifamiklum jarðakaupum auðmanna. „Kannski verður ekki við þetta ráðið. Ég er nýtingarmaður, ég er alinn upp við að grafa skurði og rækta land og nýta það á réttan hátt. Mér finnst mjög sorglegt þegar sveitir fara í eyði. Ég er nýkominn af Vestfjörðum og fór út í Selárdal og dáist að því fólki sem hefur búið þarna fyrir vestan og átta mig á því að á þessum slóðum hafa bara búið heljarmenni og ofurkonur.“ Eins og tvöfalt plötuumslag Eyþór starfar sem sviðsstjóri í Hörpu. Hann er spurður hvort tónlistin sem hann heyrir þar hafi haft áhrif á ljóð hans. „Hún hefur haft áhrif á sum þeirra, en ekki mikið í þessari bók. Á yngri árum sökkti ég mér niður í popptónlist en kynnin af klassískri tónlist hafa opnað ákveðnar víddir.“ Ljóðabók hans er skipt niður í kafla, sem heita Hlið I, Hlið II, Hlið III og Hlið IV. „Hugmyndin var að bókin yrði eins og tvöfalt plötuumslag. Í fjórða hlutanum eru ljóð sem tengjast plötuumslögum og í textanum er vísað í þau,“ segir Eyþór. Í einu ljóðanna segir: „Nú löngu seinna sit ég með lúið plötuumslag í höndunum og fer nærri að gráta en er samt glaður því þarna er mynd af mér og vinum mínum.“ Eyþór segist þarna vera að vísa í plötu með Bob Dylan og The Band. „Á því plötuumslagi er hópur af fólki og í ljóðinu ímynda ég mér að það séu vinir mínir.“ Fagnar 64 ára afmæli Ljóðin í bókinni eru 64 og í dag, fimmtudag, fagnar Eyþór einmitt 64 ára afmæli. „Ég hef hugsað um Bítlalagið When I’m Sixty Four síðan ég var þrettán ára. Svo er allt í einu komið að þessu og maður er bara þakklátur fyrir að vera Sixty Four. Ég er búinn að komast að því að það er hugurinn sem skiptir meginmáli. Ég fann þetta svo sterkt þegar ég fór í göngur síðasta haust fyrir norðan. Ég hafði ekki hreyft mig neitt en samt var ég ósjálfrátt kominn upp um allar hlíðar að hlaupa fyrir kindur. Ég vissi alveg hvernig átti að gera þetta þótt ég kæmist varla úr sporunum. Það var hugurinn sem dreif mig áfram. Ef hugurinn er í lagi og líkamlega heilsan þokkaleg eru manni allir vegir færir.“
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Bíó og sjónvarp 007 First Light: Bond hefur aldrei verið betri Leikjavísir Valin versti ljósmyndari heims Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira