LEX kaupir GH Sigurgeirsson Birgir Olgeirsson skrifar 28. september 2018 14:24 Örn Gunnarsson, faglegur framkvæmdastjóri Lex.
Lögmannsstofan LEX hefur keypt hið 80 ára gamla fyrirtæki GH Sigurgeirsson, sem sérhæfir sig í vörumerkja- og einkaleyfarétti. Fyrirtækið mun fá nafnið GH Sigurgeirsson Intellectual Property og verður rekið sem sjálfstætt dótturfyrirtæki LEX. LEX hefur lengi verið mjög framarlega á sviði hugverkaréttar, og hefur á að skipa meðal annars tveimur af helstu lögmönnum landsins í því sviði, þeim Erlu S. Árnadóttur og Huldu Árnadóttur. Með kaupunum er ætlunin að breikka þetta svið til muna. Allir viðskiptavinir GH Sigurgeirssonar eru erlendir, en þar á meðal eru um 500 fyrirtæki hér á landi í eigu erlendra aðila. Gengið var frá kaupunum endanlega núna í haust en þá ákvað eigandinn, Gunnar H. Sigurgeirsson, að setjast í helgan stein. Hann hafði þá verið starfandi í rúm 50 ár. „Við viljum að viðskiptavinir okkar geti fengið allt á einum stað hvað hugverkarétt varðar. Málum er tengjast hugverkaréttindum fer fjölgandi, hvort sem það er í hugbúnaðargeiranum, á sviði einkaleyfa, vörumerkja eða í hinum skapandi geira, tónlist, kvikmyndum eða bókmenntum. Við sjáum þetta fyrir okkur sem mikið vaxtarsvið í framtíðinni í íslenskri lögfræði, sem unnt er að sinna betur,“ er haft eftir Erni Gunnarssyni faglegum framkvæmdastjóra Lex.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira