GusGus frumsýnir nýtt myndband: Fjallar um einmana einstakling sem kann ekki að elska Stefán Árni Pálsson skrifar 20. september 2018 13:30 Ellen Loftsdóttir leikstýrði myndbandinu og hefur hún áður unnið með GusGus. „
Titill lagsins og viðlag þess er Don't Know Hot To Love. Myndbandið fjallar í grófum dráttum um mjög leitandi og einmana einstakling sem kann ekki að elska en þráir heitt að geta það og reynir sitt besta til þess að verða ástfanginn,“ segir Ellen Loftsdóttir sem er ein af þremur leikstjórum í nýju myndbandi frá íslensku hljómsveitinni GusGus og er lagið frumsýnt hér á Vísi. „Hann skilur svo loks að ást er ekki lærð hegðun heldur tilfinning sem hann verður að finna innra með sér og þá finnur hann til vanmáttar. Áhorfandinn fylgir honum í gegnum þetta ferðalag og oft er óljóst hvort um raunveruleikann eða sjúkan, einmana hugarheims hetjunnar er að ræða.“Sterk og skýr verkaskipting Ellen segir að ferlið hafi allt verið mjög krefjandi, lærdómsríkt og afar skemmtilegt. „Ég var í rauninni fyrir smá áfalli hversu vel og snurðulaust þetta gekk allt saman svona í ljósi þess að við vorum þrjú að leikstýra þessu myndbandi. Sterk og skýr verkaskipting var kannski stór ástæða þess hversu vel allt gekk. Við skiptum mismunandi mikilvægum hlutverkum á milli sem síðan sameinuðust í leikstjórninni. Andri Haraldsson sá um kvikmyndatöku, aðalhlutverkið var í höndum á Baltasar Breka og ég sá um listræna stjórnun. Stærsti þátturinn var kannski hversu heppin við vorum með okkar yndislega crew og einstaklega fallegan og hæfileikaríkan leikarahóp sem vakti dag og nótt með okkur og eiga öll stóran þátt í að hugarheimur þessa myndbands varð að veruleika.“Frá tökum á myndbandinu.Hún vill nefna sérstaklega Tind Kárason sem framleiddi myndbandið og kallar Ellen Tind snilling sem hélt fólki við efnið á öllum stundum. Tökur fóru fram á Vestfjörðum og einnig í Reykjavík. Ellen segir að gott sé að vinna með meðlimum GusGus. „Ég hef komið að gerð nokkurra tónlistarmyndbanda bæði sem stílisti og leikstjóri. Ég hef mikið verið að vinna með þeim fyrir þessa plötu. Séð um hin og þessi mál sem snúa að listrænni stjórnun bandsins og síðan auðvitað þetta myndband. Það er krefjandi og skemmtilegt að vinna með GusGus, margir sem koma að bandinu og hafa allir auðvitað sterkar skoðanir, sem gaman er að takast á við. Ég kem úr tískuheiminum svo ég er smá að fara út úr mínum þægindaramma og sem ég hef mjög gaman af.“Frá tökum.Stefna á tuttugu milljónir Ellen gerði myndbandið við lagið Over og þegar þessi frétt er skrifuð er myndbandið komið með 12 milljónir áhorfa. Það kom Ellen töluvert á óvart að sjá hvernig viðtökur myndbandið fékk á sínum tíma. „Það kom auðvitað skemmtilega á óvart þar sem myndbandið var alveg smá óvenjulegt á þeim tíma og þá sérstaklega þegar kemur að stílbragði. Það er alltaf hægt að gera betur og maður stefnir auðvitað alltaf hærra og að gera betur næst. Svo eigum við ekki bara að segja 20 milljónir og yfir,“ segir Ellen sem hvetur fólk að horfa á nýja myndbandið með heyrnartól og hafa hátt stillt. Neðar má sjá myndir sem sýna stemninguna bakvið tjöldin við gerð myndbandsins.
Tónlist Mest lesið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fleiri fréttir IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira