Lífið

Ed Sheeran heldur tónleika á Laugardalsvelli næsta sumar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ed Sheeran kemur til Íslands.
Ed Sheeran kemur til Íslands. Vísir/Getty
Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran heldur tónleika á Laugardalsvelli 10. ágúst 2019 en þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live.

Sheeran er einn allra vinsælasti tónlistarmaður heims og þarf ekki að kynna fyrir neinum. Hann kom fram á tónleikaferðalagi í Evrópu fyrr á þessu ári og ferðast hann nú um Bandaríkin.

Bretinn selur upp hvert sem hann fer en miðasalan hefst 27. september á slaginu níu á tix.is/ED

Í boði verða fjögur verðsvæði:

– Standandi: 15.990 kr

– Sitjandi C: 19.990 kr

– Sitjandi B: 24.990 kr

– Sitjandi A: 29.990 kr.

Ekki verður um neinar forsölur að ræða; allir miðarnir fara í sölu á sama tíma og allir hafa jafnt tækifæri til að tryggja sér miða um leið og salan hefst.

Stafræn biðröð verður notuð til að stjórna umferð inn á síðuna og vernda miðasölukerfið fyrir álagi, með það að markmiði að salan gangi sem allra best fyrir sig eins og segir í tilkynningu Senu Live. 

Ed Sheeran er fæddur árið 1991 í Halifax í Bretlandi. Hann vakti fyrst athygli árið 2011 þegar hann gaf út plötuna No. 5 og eftir það þá fór ferillinn hans á flug.

Sheeran hefur selt yfir 26 milljónir platna en tónleikar hans eru í raun það sem hann er hvað þekktastur fyrir.

Fyrr í sumar gaf hann út myndband af tónleikum sínum á Wembley í London þar sem myndaðist mögnuð stemning. Hér að neðan má sjá myndbandið en í því stígur hann á stokk með Ítalanum Andrea Bocelli. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.