Lífið

ClubDub í útrás: Björk mætti á tónleika og heimildarmynd á leiðinni

Sylvía Hall skrifar
Að sögn strákanna var það mikill heiður þegar þeir fréttu að Björk hefði fylgst með tónleikum þeirra.
Að sögn strákanna var það mikill heiður þegar þeir fréttu að Björk hefði fylgst með tónleikum þeirra. Vísir/Getty
Raftónlistartvíeykið ClubDub sem samanstendur af þeim Aroni Kristni Jónassyni og Brynjari Barkarsyni skaust hratt upp á stjörnuhimininn í sumar þegar þeir gáfu út plötuna sína Juice Menu Vol. 1. Í dag eru þeir með vinsælustu hljómsveitum landsins og komu nýverið fram á Airwaves í fyrsta sinn.

Sjá einnig: Margir sem misskilja textann: „Um daginn heyrði ég sækja þetta drug“

Þeir félagarnir komu fram í Silfursölum á föstudeginum við góðar undirtektir tónleikagesta en þó var einn gestur sem vakti meiri athygli en aðrir. Stórstjarnan Björk var mætt til þess að fylgjast með tónleikum strákanna sem kom þeim ánægjulega á óvart hafandi verið að spila á minni tónleikum en margir aðrir á Airwaves.



„Þegar við vorum búnir að spila kemur einn vina okkar til okkar og segir að Björk hafi verið að horfa á show-ið. Það er rosalegur heiður, ef ég fengi að velja mér einn Íslending til þess að sjá mig spila væri það Björk,“ segir Aron í samtali við Vísi. Hann segist þó vera feginn því að hafa fengið fregnirnar eftir tónleikana enda hefðu þeir félagar mögulega verið stressaðari en ella hefðu þeir vitað af henni. 

„Það er svo súrrealískur draumur þannig séð þegar maður er í stúdíóinu að gera lag sem heitir C3po og svo mætir Björk og horfir á þig syngja um eitthvað vélmenni.“



 
 
 
View this post on Instagram
takk fyrir okkur í bili Dalur - sjáumst aftur í kvöld klukkan 04:00

A post shared by ClubDub (@klubbasigur) on Aug 3, 2018 at 2:22pm PDT



Nýtt lag og heimildarmynd á döfinni 

Þrátt fyrir mikla keyrslu undanfarna mánuði sitja þeir félagar ekki auðum höndum þessa dagana en í lok nóvember munu þeir gefa út nýtt lag í samstarfi við Whyrun en lagið heitir „Pussypower“ og ætti það að gleðja marga aðdáendur.

Stærsta verkefnið sem ClubDub vinnur að þessa stundina er þó að leggja lokahönd á heimildarmynd sem þeir hafa unnið að undanfarna mánuði í samstarfi við leikstjórann Vigni Daða þar sem aðdáendur fá innsýn inn í líf og störf hljómsveitarinnar. Hugmyndin kveiknaði í haust þegar þeir voru bókaðir á fjöldann allan af menntaskólaböllum.

ClubDub
„Við erum búnir að vinna að því að gera heimildarmynd og tókum seinni hluta sumarsins allan upp, þar á meðal þegar við spiluðum á tíu busaböllum,“ segir Aron. Í myndinni verður einnig farið yfir æsku strákanna, hvernig þeirra leiðir lágu saman og einnig rætt við fjölskyldu og vini.

Þá stefna þeir á að gefa myndina út í upphafi næsta árs og segir Aron aðdáendur eiga von á góðu en fjöldinn allur af íslensku tónlistarfólki kemur í viðtal í myndinni. 

„Og Björk, ef þú ert að lesa þessa frétt, þá máttu koma í viðtal.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.