Einn vildi 0,5 prósenta hækkun á stýrivöxtum Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar 22. nóvember 2018 07:00 Már Guðmundsson seðlaankastjóri. Fréttablaðið/Stefán
Einn nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans greiddi atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra og vildi hækka vexti um 0,5 prósentur. Þetta kemur fram í fundargerð af síðasta vaxtaákvörðunarfundi nefndarinnar Seðlabankastjóri lagði til að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur og var tillagan samþykkt. Í fundargerðinni segir að helstu rökin fyrir þessari hækkun hafi verið þau að töluverð óvissa sé um hversu hratt dragi úr hagvexti, og hvernig gengi krónunnar muni bregðast við hækkun vaxta og lækkun hlutfalls sérstakrar bindiskyldu. Helstu rökin fyrir hækkun um 0,5 prósent voru hins vegar þau að verðbólguhorfur hefðu versnað töluvert og verðbólguvæntingar hækkað það mikið að 0,25 prósenta hækkun vaxta dygði ekki til, enda yrði taumhald peningastefnunnar áfram minna en það var á októberfundi nefndarinnar þrátt fyrir þessa vaxtahækkun. Þá væru raunvextir bankans afar lágir þegar haft er í huga að spenna er enn í þjóðarbúskapnum. Nefndin var sammála um að ef verðbólguvæntingar héldu áfram að hækka og festust í sessi umfram markmið myndi það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, hefðu þá áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður yrði í lægra atvinnustigi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Viðskipti innlent Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Viðskipti innlent Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ KS við það að kaupa B. Jensen Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Spá hressilegri vaxtalækkun Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Þrjú ráðin til Tryggja Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Sjá meira