Lífið

Kim og Kanye sögð eiga von á fjórða barninu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kanye West og Kim Kardashian eiga fyrir þrjú börn.
Kanye West og Kim Kardashian eiga fyrir þrjú börn. Getty/Roy Rochlin
Athafnakonan Kim Kardashian West og tónlistarmaðurinn Kanye West eru sögð eiga von á sínu fjórða barni, að því er fram kemur í fjölmiðlum vestanhafs. Talið er að staðgöngumóðir gangi með barnið líkt og í tilfelli yngstu dóttur þeirra, Chicago, sem fæddist í janúar í fyrra.

Fregnir af barnaláni West-hjónanna hafa þó ekki fengist staðfestar en fjölmargir miðlar hafa haft málið til umfjöllunar í dag. Þá hefur tímaritið Us Weekly eftir heimildarmanni sínum að hjónin eigi von á dreng.

Fyrir eiga Kim og Kanye þrjú börn: North, fimm ára, Saint, þriggja ára, og Chicago, sem verður eins árs nú í janúar. Kim gekk sjálf með eldri börnin tvö en ákvað af heilsufarsástæðum að notast við staðgöngumóður í þriðja skiptið.

Ákvörðun hjónanna um að leita aftur á náðir staðgöngumóður kemur heim og saman við yfirlýsingar Kim þess efnis að hún hyggist ekki ganga með fleiri börn en hún var greind með viðgróna fylgju (e. placenta accreta) sem getur valdið alvarlegum blæðingum í fæðingu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.