Tónlist

Ákveðið að snúa aftur til gamalla tíma á Eistnaflugi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eistnaflug hefur verið vinsæl tónlistarhátíð undanfarin ár.
Eistnaflug hefur verið vinsæl tónlistarhátíð undanfarin ár.
Eistnaflug hefur tilkynnt fyrstu átta hljómsveitirnar sem koma munu fram á endurhvarfi hátíðarinnar til rótanna í Egilsbúð 10. – 13. júlí. Eins og margir vita er Eistnaflug fyrst og fremst þungarokkshátíð, þó hefur hún einnig getið sér orð fyrir að kynna til leiks tónlistarmenn sem spila allt frá elektrómúsík, yfir í popp yfir í indie.

„Þetta árið ætlum við að hverfa aftur til upprunans og halda hátíðina í Egilsbúð, dæmigerðu félagsheimili sem hýsti hátíðina frá fyrsta skiptinu til og með árinu 2014. Á hátíðinni hafa komið fram allt frá litlum bílskúrsböndum upp í heimsfræga listamenn sem enginn hefði getað trúað að kæmu fram í litla fiskiþorpinu á Austfjörðum Íslands,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar.

Í upphafi Var Eistnaflug eins dags hátíð  en gegnum tímann hefur hún þróast og stendur í ár, líkt og síðustu ár, yfir frá miðvikudegi til og með laugardegi. Síðustu ár hefur hún verið haldin í íþróttahöllinni í Neskaupstað en í ár var ákveðið að snúa aftur til gamalla tíma og halda hana í hitanum, þrengslunum og svitanum í Egilsbúð.

Hljómsveitirnar sem staðfestar eru á Eistnaflug 2019 eru:

Primordial (IRL), Nyrst (ISL), Volcanova (ISL), Úlfúð (ISL), Devine Defilement (ISL), Ottoman (ISL), Dynfari (ISL) og Sóstafir (ICELAND).

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.