Níu umsóknir bárust um styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulífið Heimsljós kynnir 14. janúar 2019 16:30
Níu umsóknir bárust um styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Í samræmi við reglur sjóðsins tekur nú þriggja manna matshópur umsóknirnar til skoðunar en hópurinn er skipaður tveimur óháðum sérfræðingum á sviði þróunarsamvinnu og fulltrúa ráðuneytisins. Stefnt er að því að utanríkisráðherra úthluti fyrstu styrkjum úr sjóðnum í næsta mánuði. Hlutverk Samstarfssjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífs til þróunarsamvinnu með það að markmiði að stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum hagvexti í fátækum þróunarríkjum. Sjóðurinn hefur yfir að ráða allt að 100 milljónum króna en áskilið er að styrkt verkefni skuli vera til hagsbóta í viðkomandi landi og stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum vexti í fátækum ríkjum heims. Samkvæmt reglum sjóðsins getur hámarksfjárhæð til einstakra verkefna numið allt að 200 þúsund evrum, yfir þriggja ára tímabil. Heimilt er að veita styrk til sama verkefnis til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárheimildir fjárlaga hvers árs. Styrkfjárhæð getur numið allt að 50% af heildarkostnaði verkefnis. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent