Bretar furða sig á byssuleysinu í Ófærð Þórarinn Þórarinsson skrifar 18. mars 2019 06:15 Sigríður Pétursdóttir kvikmyndakona hitti tvær enskar konur á förnum vegi í London og eftir stutt spjall um Ófærð lögðu konurnar tvær fram skýlausa kröfu um að þriðja sería þáttanna gerist að sumri til. Fréttablaðið/Ernir
Breskir aðdáendur Ófærðar 2 önduðu léttar á laugardagskvöld þegar BBC4 sýndi tvo síðustu þættina í einum rykk. Sigríður Pétursdóttir býr í London þar sem hún hefur fundið fyrir miklum áhuga á þáttunum og Íslandi. „Ég hef fengið alls konar skemmtileg viðbrögð,“ segir Sigríður í samtali við Fréttablaðið. „Einna skemmtilegast fannst mér þegar ég var í Kenwood House um daginn að mynda stórt og fallegt magnólíutré. Þar voru tvær dömur í sömu erindagjörðum og eftir að við vorum búnar að tala aðeins um hvað þetta væri fallegt, sagði ég þeim að ég fengi ekki nóg af þessum trjám á vorin því á Íslandi væru engin slík.“ Þegar konurnar áttuðu sig á því að Sigríður væri íslensk barst talið snarlega að „Trapped“ eins og þættirnir heita á ensku. „Þær spurðu um myrkrið og veðrið og hvenær best væri að ferðast til Íslands,“ segir Sigríður. „Ég sagði þeim frá miðnætursólinni, þegar sólin sigldi á haffletinum og færi svo upp aftur. Þeim fannst það hrikalega spennandi, að það væri bjart allan sólarhringinn.“ Í ljósi þessarar nýfengnu vitneskju sögðust konurnar tvær endilega vilja að þriðja sería Ófærðar gerist að sumarlagi. „Svo Bretar myndu fá að kynnast þeirri hlið á Íslandi líka. Ég þekki helling af fólki sem fór til Íslands vegna þáttanna og líka vegna Game of Thrones.“Andri og Hendrika heilla Fyrsta Ófærðarserían féll vel í kramið þegar hún var sýnd í Bretlandi 2016 og þá var það ekki síst Ólafur Darri Ólafsson í hlutverki bangsalegu löggunnar Andra sem heillaði og festi sér fjölda aðdáenda sem hafa fylgst spenntir með þessum nýjustu hremmingum hans. „Þegar fyrri serían var í gangi voru stelpurnar sem voru með mér í dansi alveg að tapa sér yfir Darra. Hann varð að miklu kyntákni hérna og ég spældi þær ógurlega með því að segja þeim að hann væri vel giftur og pabbi í ofanálag. Þær bara neituðu að trúa því. En það var ekki bara Darri sem átti hug fólks og ég man eftir eldri dömu sem sagði að hana langaði helst að ættleiða Hinriku,“ segir Sigríður um lögreglustjórann sem Ilmur Kristjánsdóttir leikur. „Hún þyrfti á góðu faðmlagi að halda. Hér voru líka gerðar könnur með myndum af þeim og ég held þær hafi bara selst vel.“Lög og regla Þá, eins og nú, byrjaði fólk umsvifalaust að ræða um Ófærð þegar það áttaði sig á þjóðerni Sigríðar. „Um leið og maður sagðist vera Íslendingur, eða einhver vissi að maður væri það, byrjaði fólk að tala um „Trapped“ og byrjaði stundum inni í miðjum söguþræði svo ég náði stundum ekki fyrst um hvað þau voru að tala.“ Og vitaskuld, eins og á Íslandi, var veðrið helsta umræðuefnið. „Þá vildu flestir tala um veðrið og hvort það væri virkilega svona á Íslandi. Þá sagði ég þeim að ég væri sjálf að norðan, frá litlum stað svipuðum Siglufirði, og mataði þau á sögum af því þegar við komumst ekki í skólann vegna ófærðar og þurftum að elda á prímusum því það var rafmagnslaust. Þetta var mjög vinsælt.“Ólafur Darri og Ilmur hafa heillað Breta í hlutverkum Andra og Hinriku.Ófærðarþættirnir hafa einnig vakið forvitni og spurningar um lögregluna á Íslandi. „Margir vildu vita hvort lögreglan væri virkilega svona vinaleg auk þess sem hún hefur verið spurð nokkuð út í hið sérkennilega orð „lögreglan“. Hvað það þýði eiginlega? „Og þá útskýri ég það og þá er spurt hvernig lögreglurnar okkar geti haldið uppi lögum og reglu þótt þær séu ekki einu sinni með byssur.“ Þetta sætir furðu en þykir að vonum ósköp krúttlegt. Svo mjög reyndar að „þegar maður reynir að leiðrétta og segja að á Íslandi sé víst spilling og alls ekki allt fullkomið þá vilja sumir ekki einu sinni heyra það“.Eftirspurn meiri en framboð „Á milli þáttaraða hef ég svo ekki tölu á öllum þeim sem spurðu mig hvenær næsta þáttaröð kæmi og hvort það væri ekki til meira efni frá Íslandi. Ég er sannfærð um að við gætum dælt þáttum í þá ef meiri fjármunir væru lagðir í gerð sjónvarpsefnis en margir urðu mjög þakklátir þegar ég sagði þeim frá öðru íslensku efni sem hægt væri að nálgast.“ Sigríður er annáluð bíókona og stjórnaði meðal annars á sínum tíma kvikmyndaþáttunum Kviku á Rás 1. Hún hefur búið í London í nokkur ár og hefur að sjálfsögðu verið með hugann við kvikmyndir. „Ég hef verið að skrifa. Búin að ljúka við eitt kvikmyndahandrit en kalla mig ekki handritshöfund fyrr en þegar eða ef það verður að mynd,“ segir Ófærðarsendiherra Íslands í London sem missti af tvöföldum lokaþættinum á laugardaginn og þarf að forðast forvitna Breta þangað til úr því verður bætt.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist „Hún sagði já“ Lífið Léttist við stöðugt pizzuát Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Steinn Ármann er látinn Lífið Fleiri fréttir Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Sjá meira