Lífið

Sjálfsfróunin kom Völu Grand mest á óvart

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vala Grand opnaði sig í Einkalífinu.
Vala Grand opnaði sig í Einkalífinu. vísir/vilhelm
Vala Grand vakti fyrst athygli hér á landi fyrir þrettán árum en hún fór í gegnum kynleiðréttingarferli árið 2010.

Vala er gestur vikunnar í Einkalífinu og opnaði hún sig um kynleiðréttingarferlið sjálf og hvernig tilfinningin hafi verið þegar hún var loksins komin í réttan líkama.

„Ég verð að viðurkenna það að í fyrsta skipti sem ég upplifði sjálfsfróun var ég alveg bara vó,“ segir Vala Grand.

„Ég spurði allar vinkonur mínar hvort þetta væri virkilega svona. Þegar strákar eru að stunda sjálfsfróun þá er þetta bara búúúm. En hjá stelpum er þetta bara í gangi í mínútu,“ segir Vala og biðst þarna afsökunar á því hvað hún sé opin með allt.

„Sorry til þeirra sem eru viðkvæm fyrir þessu. Ég er bara hreinskilin. Það pæla allir í þess hvort þetta sé það sama. Nú ætla ég bara að segja, þetta er ekki það sama. Tilfinningin er að þú hristist einhvern veginn þegar þú ert komin með vinkonunni,“ segir Vala og bætir við að ekki allt transfólk hafi slík taugaboð eftir aðgerð.

Í þættinum hér að ofan ræðir Vala einnig um sviðsljósið og athyglina, barnæskuna, ofvirknina, um kærastann sem tekur henni eins og hún er, framtíðina og margt fleira.


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Kristbjörg hefur fórnað miklu fyrir mig

Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði og leikmaður Cardiff í ensku úrvalsdeildinni gaf á dögunum út bókina Aron – Sagan mín. Þar fer hann ítarlega yfir ferilinn, uppvaxtarárin á Akureyri og lífið í heild sinni.

Pabbi var mín besta forvörn

Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta, er með sítt, ljóst og fallegt hár og vakti athygli lesenda Vísis á dögunum þegar hann var fastur í Málmey í fjóra daga án vatns og matar.

„Hún er algjörlega stelpan fyrir mig“

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.

„Hefði ekki viljað hafa neinn annan með mér í þessu“

Síðastliðinn áratug hefur Sólmundur Hólm Sólmundarson starfað sem skemmtikraftur og heillað þjóðina upp úr skónum. Árið 2017 greindist Sóli með eitlakrabbamein og við tók heljarinnar barátta við meinið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.