Tom Clancy‘s The Division 2 er fjölspilunarleikur þar sem spilarar þurfa að taka höndum saman til að kom röð og reglu á það sem eftir er af höfuðborg Bandaríkjanna, bjarga íbúum gegn glæpagengjum og hjálpa þeim að lifa af.
Það helsta sem finna má að leiknum er hvað sagan er tötraleg eitthvað. Ég er ekki búinn með söguna enn, þar sem ég keppist alltaf við að klára alla smáhluti sem ég get fundið í svona leikjum, en staðan er sú að ég hef yfirleitt ekki hugmynd um hvað er að gerast í þeim verkefnum sem mér er gert að leysa. Þó ég hafi fylgst vel með er það eina sem ég veit að ég þarf að drepa fullt af gaurum.
Ég spilaði aldrei upprunalega Division og þá aðallega út af því að ég kann sjaldan að meta leiki þar sem það þarf að tæma heilt magasín í hausinn á gaurum til að drepa þá. Þetta þykir mér þó ekki vera vesen í Division 2, þar sem tvö til þrjú skot duga iðulega til. Þó eru nokkrir „endakallar“ sem eru sérstaklega brynvarðir og það þarf verulega mikið af blýi til að ganga frá þeim.

Bardagakerfi Division 2 byggir á því að koma sér í skjól, skjóta úr skjóli, hlaupa úr skjóli þegar einhver drullusokkur kastar handsprengju í þig, finna sér nýtt skjól og skjóta úr því skjóli. Þetta kallast á ensku „cover shooter“ er Division 2 vel heppnaður cover shooter.
Það er þó nokkuð um endurverknað (svokallað „grind“) í Division 2 sem felst í því að safna auðlindum fyrir byggðir íbúa og hjálpa þeim að lifa af. Það þarf að safna málmum, mat og vatni, svo eitthvað sé nefnt. Þau hjá Ubisoft eru reyndar orðin nokkuð góð í því að skapa góða opna heima með mikið af grindi, án þess þó að það sé leiðinlegt. Flest öll verkefni leiksins snúa að því að fara í eitthvað frægt hús, skjóta vonda karla þar og finna einhverja tækni eða tengjast við einhvern gervihnött.
Það verður þó sjaldan einsleitt þar sem þessi grunnformúla tekur nokkrum breytingum í hverju verkefni. Þau eru í rauninni fjölbreytt. Sömuleiðis eru vondu karlarnir líka fjölbreyttir. Það má finna hefðbundna óvini með byssur, aðra sem taka sprettinn og reyna að berja spilara með röri. Það er mjög pirrandi þegar þeir komast upp að manni. Svo eru einnig leyniskyttur, tæknisérfræðingar sem setja sprengjur á sjálfstýrða bíla og margar aðrar týpur. Það eru einnig mjög svo brynvarðir gaurar með vélsagir.
Ég á erfitt með að finna eitthvað sérstakt til að setja út á í Division 2, fyrir utan söguna. Nema þá það að ég hef nokkrum sinnum lent í því að óvinir birtast upp úr þurru fyrir aftan mig og skjóta mig. Sem er pirrandi en það er varla hægt að setja út á það í svona leik.
Ég hef ekki rekist á neina eftirtektarverða tæknilega galla og það það þykir mér reyndar alveg magnað. Það er sjaldgæft þessa dagana að leikir virki fullkláraðir þegar þeir eru gefnir út og þá sérstaklega fjölspilunarleikir. Eins og áður segir er sagan ekkert til að hrópa húrra yfir og oftar en ekki hef ég ekki hugmynd um af hverju ég/við erum að slátra óvinum og ýta á takka.

Samantekt-ish
Undirritaður hefur aldrei verið sérstakur aðdáandi fjölspilunarleikja en ég er aðdáandi Division 2. Hann er hraður og skemmtilegur og bardagakerfið er mjög gott. Hann lítur einnig vel út og það er nóg að gera í honum. Þó það sé mikið grind verður það ekki mjög þreytandi.Ég spilaði leikinn með PS4 eintaki sem ég fékk hjá innflytjendum hans.